Tyrkir neita því að þeir hafi snuprað von der Leyen Kjartan Kjartansson skrifar 8. apríl 2021 11:21 Aðeins voru tveir stólar fyrir leiðtogana þegar Charles Michel, forseti leiðtogaráðs ESB, (t.v.) og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, (t.h.) funduðu með Recep Erdogan Tyrklandsforseta (f.m.) á þriðjudag. Vísir/EPA Utanríkisráðherra Tyrklands segir fráleitt að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hafi verið sýnd óvirðing vegna kynferðis hennar á fundi með Recep Erdogan forseta á þriðjudag. Von der Leyen var látin sitja á sófa til hliðar við Erdogan og Charles Michel, forseta leiðtogaráðs ESB.
Uppákoman á fundi leiðtoga Evrópusambandsins með Erdogan í forsetahöllinni í Ankara vakti furðu og gagnrýni. Þau von der Leyen og Michel voru leidd inn í sal til viðræðna við Erdogan en tyrknesku gestgjafarnir höfðu aðeins komið fyrir tveimur stólum. Von der Leyen stóð því álengdar á meðan Erdogan og Michel tóku sæti sín. Síðar sást hún sitja á stórum sófa á meðan karlmennirnir tveir ræddu málin. AP-fréttastofan segir að forseti framkvæmdastjórnarinnar hafi látið vonbrigði sín í ljós. Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, hafnar því að von der Leyen hafi verið mismunað vegna þess að hún er kona. Hann fullyrðir að farið hafi verið eftir óskum Evrópusambandsins um siðareglur fyrir fundinn. „Með öðrum orðum var sætatilhögunin í samræmi við tillögur fulltrúar Evrópusambandsins. Punktur,“ sagði utanríkisráðherrann. Michel sagði í gær að Tyrkir hefðu túlkað siðareglur fyrir fundinn „bókstaflega“. Hann harmaði meðferðina á forseta framkvæmdastjórnarinnar sem hefði jafnvel verið óvirðing sýnd. Michel hefur sjálfur verið gagnrýndur fyrir að standa ekki með von der Leyen. Talsmaður von der Leyen sjálfrar sagði að fyrirkomulagið hefði komið henni á óvart og að hún hefði átt að sitja með þeim Michel og Erdogan. Hún hafi aftur á móti kosið að einblína á efni fundarins frekar en að festa sig í siðareglur.
Tyrkland Evrópusambandið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Erlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Grunaðir um rán í miðbænum Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Erlent Fleiri fréttir Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Sjá meira