Verkfall væri sérkennilegt útspil kennara í heimsfaraldri Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 13. janúar 2022 20:01 Aldís Hafsteinsdóttir áttar sig ekki almennilega á afstöðu kennara. vísir/magnús hlynur Grunnskólakennarar kolfelldu nýjan kjarasamning við sveitarfélögin í dag. Deilan fer nú aftur til ríkissáttasemjara sem gæti reynst erfitt að greiða úr málinu. Formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) er undrandi yfir málinu.
Grunnskólakennarar hafa í langflestum tilvikum við kjaraviðræður síðustu ára fellt kjarasamning sem samninganefnd félagsins hafði undirritað á einhverjum tímapunkti viðræðnanna. Atkvæðagreiðslan sem hefur staðið yfir í viku var niðurstaðan sannarlega afgerandi. Aðeins fjórðungur þeirra sem greiddu atkvæði vildu samþykkja samningin en tæp 74 prósent kennara höfnuðu honum. Samningurinn byggir á lífskjarasamningunum, með sambærilegum launahækkunum og eru boðaðar í honum. Buðu eins vel og þau gátu innan lífskjarasamnings Samtök íslenskra sveitarfélaga furða sig á þessari niðurstöðu. „Og þegar kjarasamningar eru undirritaðir þá á maður náttúrulega von á að um samninginn ríki sátt og ánægja og að samninganefndir beggja vegna tali fyrir því að hann verði samþykktur. Mér finnst þetta sérkennilegt. Samningurinn er felldur með mjög miklum mun sem kemur okkur á óvart,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, formaður stjórnar SÍS. Næstu skref eru að setjast niður hjá ríkissáttasemjara til að finna sameiginlega lausn á málinu en ljóst er að það gæti orðið strembið. „Við áttum okkur ekki alveg á því hvað það var þarna sem út af stóð. Við buðum eins vel og við gátum. Við skrifuðum þarna undir samning sem byggði á ákvæði lífskjarasamningsins sem að allar aðrar starfsstéttir í landinu hafa fengið,“ segir Aldís. Það er nú Félags grunnskólakennara að átta sig á því hvort einhverja leið að samningi sé að finna. Annars gætu félagsmenn viljað kjósa um mögulegt verkfall. Aldís vonar auðvitað að til þess komi ekki. „Ég held að ég sé ekki ein um þá skoðun að finnast ástandið í samfélaginu - við erum á neyðarstigi Almannavarna í verstu efnahagslægð sögunnar. Það er heimsfaraldur inflúensu. Og það væri afar sérkennilegt útspil svo ekki væri dýpra í árina tekið að kalla fólk í verkfall núna.“
Grunnskólar Kjaramál Sveitarstjórnarmál Skóla - og menntamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Innlent Fleiri fréttir Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Sjá meira