Sport

„Náðum að spila okkar vörn og vonandi er hún komin til að vera“

Andri Már Eggertsson skrifar
Kristófer Acox og Callum Lawson fögnuðu eftir leik
Kristófer Acox og Callum Lawson fögnuðu eftir leik Vísir/Bára Dröfn

Valur tók forystuna 2-1 gegn Tindastóli í úrsliteinvíginu í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Valsmenn voru undir nánast allan leikinn en með ótrúlegum fjórða leikhluta unnu heimamenn 84-79.Kristófer Acox, leikmaður Vals, var afar ánægður eftir leik.

„Körfubolti er spilaður í fjórtíu mínútur. Við lentum í svipaðri stöðu og í síðasta leik. Við töluðum um það í hálfleik að það væru tuttugu mínútur eftir við höfum komið áður til baka í sömu aðstæðum. Við grófum okkur djúpt en við vissum að við áttum mikið inni,“ sagði Kristófer Acox hæstánægður með sigurinn.

Kristófer taldi andlegu hlið Vals betri í kvöld heldur en fyrir norðan og hrósaði hann sínu liði fyrir það.

„Við töluðum um það að við myndum ekki jafna þetta á einni mínútu heldur yrðum við að vera þolinmóðir og gefast ekki upp þrátt fyrir að þeir myndu gera nokkrar körfur í röð. Við duttum í það hugarfar og sóttum sigurinn.“

Kristófer var ánægður með vörn Vals í seinni hálfleik sem endaði með að Tindastóll tapaði urmul af boltum.

„Við fengum loksins að sjá þessa vörn sem við erum þekktir fyrir. Það var leiðinlegt að fá hana svona seint en vonandi er hún komin til að vera.“

Þetta var annar leikurinn í röð sem Valur tapaði átján boltum og taldi Kristófer það áhyggjuefni.

„Það er mikið áhyggjuefni og mér fannst við gefa þeim mikið af sóknarfráköstum. Tindastóll refsar okkur alltaf þegar við töpum boltanum og við þurfum að halda haus og spila okkar bolta,“ sagði Kristófer Acox að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×