„Hugsunin góð“ hjá Páli en hefði viljað ganga lengra Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 29. nóvember 2020 12:52 Páll Magnússon og Benedikt Jóhannesson mættust í umræðu um sjávarútveg í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Vísir Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar og Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, mættust í umræðu um sjávarútveg í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Páll hefur sjálfur lagt fram frumvarp á Alþingi sem ætlað er að girða fyrir óeðlilega samþjöppun aflaheimilda. Athygli hefur vakið að Páll leggi fram frumvarpið upp á eigin spýtur, einkum í ljósi þess að ráðherra Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þór Júlíusson, fer fyrir ráðuneyti sjávarútvegsmála. „Í fiskveiðistjórnunarlögunum er þak sem á að koma í veg fyrir að of mikið af aflaheimildum safnist á fáar hendur. Þetta þak er, ein viðmiðunin er að enginn einn aðili má fara með meira en 12% af heildaraflaheimildunum við Ísland. Þversögnin hins vegar í fiskveiðistjórnunarlögunum er sú að þessi aðili, sem hugsanlega væri kominn með 12% hann getur hins vegar keypt 49,9% í öllum öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi, án þess að heimildir þeirra teldust til hans eða bættust við,“ sagði Páll. Þannig gætu tæknilega að sögn Páls, átta fyrirtæki sem ættu hvert um sig upp í þakið 12% en eitt þeirra ætti síðan helminginn í öllum hinum. „Þetta tel ég vera mikla gloppu í lögunum og ég vil freista þess að laga það með þessu frumvarpi,“ sagði Páll. Benedikt sagðist taka undir hugsunina hjá Páli, hún sé í sjálfu sér góð en að sjálfur myndi hann vilja ganga lengra. „Mér finnst þetta, af því það má eflaust deila um þessi 12%, hvort þau séu endilega rétta talan, en ef við erum með einhverja svona viðmiðun þá á náttúrlega að fara eftir því. Mér finnst hugsunin hjá Páli vera ágæt að reyna að laga þetta en mér finnst hann reyndar ekki ganga nógu langt vegna þess að fyrirtæki sem á 49,9% í einhverju fyrirtæki stjórnar því náttúrlega. Það er ráðandi hlutur. Við vitum það að á hlutabréfamarkaði að þá þurfa aðilar að gera yfirtökutilboð ef þeir fara yfir 30%, þá eru þeir taldir ráðandi í félaginu,“ sagði Benedikt. Þegar séu dæmi þessa til staðar er varðar sjávarútveginn. „Samherji á 49% að minnsta kosti í Síldarvinnslunni og þar var, að minnsta kosti til skamms tíma, forstjóri Samherja stjórnarformaður en svo er því haldið fram að þetta séu alls óskildir aðilar. Þetta er auðvitað galli og Páll bendir á þetta. Ég myndi vilja að segja að menn mættu ekki eignast ráðandi hlut, ég myndi ganga skrefinu lengra,“ segir Benedikt.
Sjávarútvegur Alþingi Sprengisandur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Fleiri fréttir Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Sjá meira