Innlent

Nýir fata­söfnunar­gámar á leið til landsins

Lovísa Arnardóttir skrifar
Gámarnir breyta um útlit þegar Sorpa tekur við verkefninu.
Gámarnir breyta um útlit þegar Sorpa tekur við verkefninu. Samsett

Nýir fatagámar Sorpu eru nú framleiðslu og munu koma til landsins í byrjun júní. Sorpa tekur við fatasöfnun af Rauða krossinum í byrjun júní. Lítill hluti þess sem er safnað hérlendis selst innanlands. Greint var frá því fyrr í gær að slæm umgengni væri við gámana víða um borg. 

Starfsmaður Rauða krossins sagði alltaf álag á þessum árstíma vegna tiltektar og að umgengni hefði farið hríðversnandi undanfarið.

Gunnar Dofri Ólafsson samskipta- og þróunarstjóri Sorpu segir Sorpu taka við verkefninu af nokkrum ástæðum en stærsta séu hringrásarlögin sem segi að það eigi að safna textíl á öllum grenndarstöðvum. Það sé aðeins gert á um 30 af 90 núna og Rauði krossinn hafi ekki séð fram á að hafa bolmagn í að stækka verkefnið með þeim hætti.

Gámarnir munu líta nokkurn veginn svona út og vera með samræmdum merkingum um fatasöfnun. Mynd/Sorpa

„Við tókum samtalið fyrir um ári síðan og niðurstaðan var að við myndum taka við verkefninu. Gámarnir eru á færibandinu og verður dreift í byrjun júní. Þá verða fatagámar á öllum grenndarstöðvum og við erum að ræða við hirðuaðila hvernig henni verður háttað,“ segir Gunnar Dofri og það sé algert lykilatriði fyrir Sorpu að það verði vel gert.

Selja kílóið á 30 til 40 krónur

Rauði krossinn mun áfram hafa aðgang af textíl hjá Sorpu. Söfnunarkostnaðurinn er einhver að sögn Gunnars Dofra og mun Sorpa selja textílinn í heildsölu sem þau safna á um 30 til 40 krónur líklega kílóið.

„Svo sjáum við um rest. Það selst ekki nema um þrjú til fimm prósent innanlands.“

Hann segir Sorpu nú að skoða ýmsa anga þessa verkefnis. Sem dæmi skoði þau hvort þau geti grófflokkað og selt í heildsölu í Góða hirðinum til fataverslana eða til dæmis Listaháskólans. Einnig skoði þau hvort það sé hægt að selja heila gáma blindandi.

„En við munum vera erfið með rekjanleika. Því við viljum ekki selja fólki gám, það selur helminginn og setur hitt svo út í skurð. Við munum vilja sjá hvað fólk gerir við textílinn,“ segir Gunnar Dofri.


Tengdar fréttir

„Þetta er gert í sátt við Sorpu“

Fataverslanir Rauða krossins verða reknar áfram með sama sniði, þrátt fyrir að Sorpa taki senn við móttöku textíls á grenndarstöðvum sínum. Fataverslanirnar eru ein mikilvægasta fjáröflun samtakanna en flokkunarstjóri segir Rauða krossinn munu fara í eigin söfnun sem verður aðskilin frá grenndar- og endurvinnslustöðvum.

Sorpa tekur yfir fata­söfnun á öllum grenndar­stöðvum

Sorpa mun á næstu misserum taka við söfnun á textíl, meðal annars fatnaði, á grenndar- og endurvinnslustöðvum Sorpu. Frá þessu er greint í minnisblaði sem lagt var fram á síðasta stjórnarfundi Sorpu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×