Lítur ætluð brot Eimskips alvarlegum augum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 21. júní 2022 11:52 Sigrún Ágústsdóttir forstjóri Umhverfisstofnunar. Rannsókn héraðssaksóknara á meintum brotum Eimskips á lögum um meðhöndlun úrgangs er umfangsmikil og kallað hefur verið eftir gögnum erlendis frá. Forstjóri Umhverfisstofnunar lítur málið alvarlegum augum og framkvæmdastjóri hjá Eimskip er með réttarstöðu sakbornings.
Málið varðar sölu Eimskips á skipunum Goðafoss og Laxfoss sem voru rifin við Alang-ströndina á Indlandi. Eimskip seldi félaginu GMS skipin árið 2019 og hefur haldið því fram að GMS hafi síðan einhliða tekið ákvörðun um endurvinnslu þeirra. Félagið er aftur á móti þekktur milliliður milli skipafélaga og félaga sem stunda niðurrif skipa við aðstæður sem taldar eru óboðlegar, bæði varðandi mengunarvarnir og framkomu við starfsfólk, líkt og BBC hefur meðal annars fjallað um. Eftir að fjallað var um málið í Kveik kærði Umhverfisstofnun félagið og héraðssaksóknari réðst í húsleit hjá Eimskip í desember. Stærsti eigandi Eimskips er Samherji Holding með um þriðjungshlut. Þar á eftir koma stærstu lífeyrissjóðir landsins.Vísir/Vilhelm Kæran varðar brot á lögum og alþjóðlegum reglum um meðhöndlun úrgangs, enda segir Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar að Eimskip hafi ekki fengið hjá þeim nauðsynlegt leyfi fyrir förgun á skipunum og flutningi á þeim. En Eimskip hefur haldið því fram að skipin hafi ekki verið ætluð til förgunar? „Ég hef tekið eftir því en okkar upplýsingar bentu til annars og þannig er okkar tilkynning til héraðssaksóknara til komin,“ segir Sigrún. Í tilkynningu sem Eimskip sendi til kauphallarinnar í gær segir að Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Eimskips, hafi verið boðaður í skýrslutöku vegna málsins þar sem hann nýtur stöðu sakbornings. Vilhelm Þorsteinsson forstjóri muni einnig gefa skýrslu en sé ekki grunaður um refsiverða háttsemi. Ekki náðist í talsmann Eimskips við vinnslu fréttarinnar. Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar héraðssaksóknara liggur ekki fyrir hversu margir verða boðaðir í skýrslutöku en fjöldinn ræðst af gagnaöflun í málinu sem nær bæði til Íslands og annarra landa - sem saksóknari vildi þó ekki tilgreina nánar. Forstjóri Umhverfisstofnunar lítur ætluð brot alvarlegum augum enda um mikið magn úrgangs að ræða. „Það sem við höfum áhyggjur af er að það er verið að færa úrgang til meðhöndlunar í ríkjum þar sem regluverk er mjög veikt og framkvæmdin á því sömuleiðis. Í Evrópu er mjög markvisst regluverk um meðhöndlun á úrgangi og það er bara gríðarlega mikilvægt að við séum ekki að færa til umhverfismál og viðfangsefni í umhverfismálum heldur tökum á þeim,“ segir Sigrún.
Sala Eimskips á Laxfossi og Goðafossi Lögreglumál Skipaflutningar Umhverfismál Eimskip Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira