Gerrard: „Auðvelt að kenna óheppni og dómurum um“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. janúar 2022 23:31 Tvö mörk voru dæmd af Aston Villa í kvöld en Steven Gerrard segist ekki ætla að kenna dómurunum um tapið. Martin Rickett/PA Images via Getty Images Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Aston Villa, segist ekki ætla að kenna dómurum leiksins um tap sinna manna gegn Manchester United í FA bikarnum í kvöld.
Leikurinn endaði með 1-0 sigri Manchester United eftir að tvö mörk voru dæmd af Aston Villa. Það síðara var nokkuð augljóslega rangstaða, en myndbandsdómarar, og svo síðar dómari leiksins, tóku sér góðan tíma í að skoða hvað gerðist í því fyrra. Fyrst var skoðað hvort að boltinn hafi haft viðkomu í Ollie Watkins á leið sinni til Danny Ings, en það hefði gert þann síðarnefnda rangstæðan. Þegar búið var að ganga úr skugga um að svo var ekki þurfti að athuga hvort að Jacob Ramsey hafi hindrað Edinson Cavani í leið sinni að boltanum. Ramsey stóð í rangstöðu og þegar búið vr að ákvarða að hann hafi haft áhrif á Cavani var markið að lokum dæmt af. Steven Gerrard var spurður út í atvikið eftir leik og hann byrjaði á því að spyrja til baka hversu langan tíma blaðamaðurinn hefði áður en hann svaraði spurningunni. „Hversu langan tíma höfum við?“ spurði Gerrar. „Dómararnir tóku sér þrjár og hálfa mínútu í að skoða þetta og þeir skoðuðu tvo eða þrjá hluti.“ Gerrard vildi þó ekki kenna dómurunum um tapið í kvöld. „Þegar VAR er á svæðinu og þeir taka ákvörðun með því þá verður þú bara að sætta þig við það. Það er ekkert sem þú getur gert til að breyta því. Það er auðvelt að kenna óheppni og dómurunum um, en við ælum ekki að gera það.“ Aston Villa tekur á móti United aftur um helgina og Gerrard segir að það sé gullið tækifæri til að koma til baka eftir þennan leik. „Það er pínu sérstakt að spila við sama liðið tvisvar á fimm eða sex dögum. Leikmennirnir hafa núna tækifæri til að snúa þessu við. Ég er viss um að mínir menn eru pirraðir. Þeir spiluðu vel og yfirspiluðu United stóran hluta leiksins en voru ekki verðlaunaðir fyrir frammistöðuna þannig að nú er tækifæri til að taka á móti þeim á Villa Park og snúa þessu við.“ „Ég er ekki vonsvikinn með frammistöðuna í kvöld. Ég er vonsvikinn með það að við höfum ekki nýtt færin okkar og fengið á okkur klaufalegt mark,“ sagði Gerrard að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn „Við erum helvíti seigir“ Íslenski boltinn Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Íslenski boltinn Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Fótbolti Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Körfubolti „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Íslenski boltinn Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Fótbolti Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Golf Fleiri fréttir Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Cole Palmer valinn bestur í apríl Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Sjá meira