Kostar 200 milljónir evra

Erling Braut Haaland er reglulega orðaður við brottför frá Borussia …
Erling Braut Haaland er reglulega orðaður við brottför frá Borussia Dortmund þessa dagana. AFP

Erling Braut Haaland, framherji þýska knattspyrnufélagsins Borussia Dortmund, kostar 200 milljónir evra í sumar. Það er spænski miðillinn AS sem greinir frá þessu.

Haaland hefur verið orðaður við öll stærstu félög Evrópu undanfarna mánuði en hann hefur leikið með Dortmund frá því í janúar 2020.

Hann hefur slegið í gegn í Þýskalandi en hann er einungis tvítugur og á því nóg eftir. 

Framherjinn hefur verið orðaður við lið á borð við Real Madrid, Barcelona, Juventus og stærstu lið Englands en það verður að teljast ólíklegt að eitthvað félag sé tilbúið að borga uppsett verð fyrir leikmanninn í sumar.

Haaland er með klásúlu í samningi sínum sem virkjast næsta sumar en hún gerir honum kleift að yfirgefa Dortmund fyrir 75 milljónir evra næsta sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert