Svipurinn á Alla ríka áður en sonurinn fékk það óþvegið Kristján Már Unnarsson skrifar 28. nóvember 2021 06:30 Sonurinn Kristinn Aðalsteinsson við málverkið af föður sínum, Alla ríka. Arnar Halldórsson „Þetta er svona svipur sem maður þekkir vel. Þetta var svona kannski rétt áður en maður fékk að heyra það óþvegið,“ segir Kristinn Aðalsteinsson glettinn þar sem hann virðir fyrir sér málverkið af föður sínum, Aðalsteini Jónssyni, á heimili sínu á Eskifirði.
Í þættinum Um land allt á Stöð 2 er fjallað um ævistarf Aðalsteins og arfleifð hans. Aðalsteinn ólst upp í sárri fátækt en hlaut síðar viðurnefnið Alli ríki. Á Eskifirði byggði hann upp eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, sem enn í dag er burðarás byggðarinnar. Fyrirtækið, sem upphaflega hét Hraðfrystihús Eskifjarðar, heitir núna Eskja. Aðaleigendur þess í dag eru hjónin Björk Aðalsteinsdóttir, dóttir Alla, og Þorsteinn Kristjánsson, tengdasonur hans, en Þorsteinn er jafnframt forstjóri Eskju. Þorsteinn Kristjánsson, tengdasonur Alla ríka, er í dag forstjóri og aðaleigandi Eskju.Arnar Halldórsson „Þetta var mjög skemmtilegur maður og við urðum mjög miklir félagar og vinir nánast frá upphafi. Stunduðum saman laxveiði og rjúpnaveiði og vorum mjög mikið saman,“ segir Þorsteinn um kynnin af tengdaföður sínum. Spurður hvort hann hafi ekki verið feiminn við manninn sem nánast var risi í austfirsku samfélagi svarar Þorsteinn: „Nei, nei. Hann kom ekkert fram sem slíkur. Hann var mjög alþýðlegur maður. En maður varð var við það að það var borin mikil virðing fyrir þessum manni, - sem eðlilegt var,“ svarar Þorsteinn. Aðalsteinn Jónsson fæddist í Eskifjarðarseli árið 1922. Hann lést árið 2008, 86 ára að aldri.Ljósmyndasafn Eskifjarðar Í þættinum er meðal annars fjallað um það uppnám sem varð þegar tveir erfingjar Aðalsteins, synirnir Elfar og Kristinn, seldu hlutabréf sín í fyrirtækinu og fluttu til Bretlands. Kristinn er núna aftur kominn heim á Eskifjörð eftir að hafa verið búsettur erlendis í rúman áratug. „Af því að það er bara svo gott að vera hérna,“ svarar Kristinn spurður hvers vegna hann sneri aftur. Í þættinum er einnig rætt við þau Jens Garðar Helgason, sem ólst upp sem nágranni Aðalsteins og býr núna í húsi hans, og Samfylkingarkonuna Eydísi Ásbjörnsdóttur, forseta bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, um Aðalstein og þau áhrif sem hann hafði á samfélagið á Eskifirði. Þátturinn er endursýndur á Stöð 2 klukkan 16:25 í dag, sunnudag. Hér má sjá byrjun þáttarins: Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins: Kvótakerfið er rætt í þættinum en útdrátt úr þeirri umræðu má sjá í frétt Stöðvar 2:
Um land allt Fjarðabyggð Sjávarútvegur Tengdar fréttir Forstjóri Eskju segir útgerðina geta stundum borgað hærri kvótaskatt Forstjóri og aðaleigandi Eskju á Eskifirði er opinn fyrir hærri kvótaskatti og segir að vel megi vera að gjaldtaka fyrir fiskveiðiheimildir sé of lág. Sonur Alla ríka, sem seldi hlut sinn í fyrirtækinu, hafnar því að hann hafi verið að taka út kvótagróða. 22. nóvember 2021 23:50 Heilaskurðlæknir á Eskifirði hyggst mergsjúga Austfirði „Ég kynntist hérna manni og kom hérna og hugsaði: Váá! Þetta er geggjaður staður,“ svarar Borgnesingurinn Kristín Lilja Eyglóardóttir, þegar hún er spurð hvað heilaskurðlæknir sé að gera á Eskifirði. 18. nóvember 2021 21:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira
Forstjóri Eskju segir útgerðina geta stundum borgað hærri kvótaskatt Forstjóri og aðaleigandi Eskju á Eskifirði er opinn fyrir hærri kvótaskatti og segir að vel megi vera að gjaldtaka fyrir fiskveiðiheimildir sé of lág. Sonur Alla ríka, sem seldi hlut sinn í fyrirtækinu, hafnar því að hann hafi verið að taka út kvótagróða. 22. nóvember 2021 23:50
Heilaskurðlæknir á Eskifirði hyggst mergsjúga Austfirði „Ég kynntist hérna manni og kom hérna og hugsaði: Váá! Þetta er geggjaður staður,“ svarar Borgnesingurinn Kristín Lilja Eyglóardóttir, þegar hún er spurð hvað heilaskurðlæknir sé að gera á Eskifirði. 18. nóvember 2021 21:01