Innlent

Fækka beygju­ak­reinum og tak­marka hraða

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sæbrautin skilur að hina nýju Vogabyggð og restina af Langholtshverfinu en mikill umferðarþungi er þar daglega. Hér má sjá teikningu af gatnamótunum.
Sæbrautin skilur að hina nýju Vogabyggð og restina af Langholtshverfinu en mikill umferðarþungi er þar daglega. Hér má sjá teikningu af gatnamótunum. Reykjavíkurborg

Til stendur að bæta umferðaröryggi á gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar/Skeiðarvogs. Það verður meðal annars gert með því að fækka vinstribeygjuakreinum af Kleppsmýrarvegi, breikka gönguleið sunnan vegarins og bæta götulýsingu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að tillagan hafi verið samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar í morgun. Undirbúningur vinnunnar hafi þegar farið fram í samráði við Vegagerðina. Framkvæmdir muni fara á fullt um leið og veður leyfi, en þegar í stað verði ráðist í að bæta götulýsingu.

Fréttastofa fjallaði um áhyggjur íbúa af gatnamótunum í september á síðasta ári:

Í tilkynningu Reykjavíkurborgar eru fyrirhugaðar breytingar tíundaðar:

  • Ein vinstribeygjuakrein verður af Kleppsmýrarvegi, við Sæbraut, í stað tveggja.
  • Miðeyjur á Sæbraut verða lagfærðar.
  • Gönguleið sunnan Kleppsmýrarvegar verður breikkuð.
  • Gangbrautir verða á öllum framhjáhlaupum með hraðalækkandi aðgerðum.
  • Götulýsing verður bætt.

„Unnið hefur verið að tillögum að breytingum á gatnamótunum í samvinnu með Vegagerðinni með það að markmiði að bæta umferðaröryggi gatnamótanna um nokkurt skeið. Með uppbyggingu Vogabyggðar hefur umferð gangandi og hjólandi vegfarenda sem fara um þessi gatnamót aukist til muna og eru margir þeirra börn á leið til og frá skóla og frístundum. Nú þegar hefur Vegagerðin lækkað hámarkshraða á Sæbraut staðbundið við gatnamótin og gangandi vegfarendum á leið yfir Sæbraut hefur verið gefinn lengri grænn tími á ljósum en áður var,“ segir í tilkynningunni.

Koma upp bráðabirgðabrú 

Þar kemur einnig fram að núverandi fyrirkomulag, þar sem tekin er vinstribeygja á tveimur akreinum frá Kleppsmýrarvegi á sama tíma og gangandi vegfarendur fara yfir Sæbraut, sé afar óæskilegt með tilliti til umferðaröryggis. Ljóst sé að breytingarnar muni hafa áhrif á flæði ökutækja á Kleppsmýrarvegi á annatíma en ávinningur hvað varðar umferðaröryggi sé ótvíræður. 

Þá stendur einnig til að koma fyrir bráðabirgðagöngubrú yfir Sæbraut, til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda þar til stokkur verður gerður. Gert er ráð fyrir að hún muni standa til móts við Snekkjuvog og muni rísa síðar á þessu ári. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×