Segir fráleitt að hann hafi komið að innbrotinu Samúel Karl Ólason skrifar 22. janúar 2022 12:45 Róbert Wessman. Róbert Wessman segir fráleitt að hann hafi með nokkrum hætti komið að innbroti á skrifstofu Mannlífs. Hann segist vonast til þess að lögreglan taki málið föstum tökum og nái sökudólgunum allra fyrst. Árásir á fjölmiðla séu aðför að lýðræðinu og eigi ekki að líðast. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Wessman, sem er forstjóri Alvogen og stjórnarformaður Alvotech, sem hann segist knúinn til að senda frá sér. Það sé vegna þess að ýjað hafi verið að því að hann hafi komið að innbrotinu. Sagt var frá því í gær að brotist hefði verið inn í bíl Reynis Traustasonar, ritstjóra Mannlífs, og þar hafi þjófarnir komið höndum yfir lykla að skrifstofum miðilsins. Reynir sagði að um „útsendara“ væri að ræða og þeir hefðu farið inn á skrifstofurnar og eytt öllu út af fréttasíðunni, sem lá niðri um tíma í gær. „Þetta eru menn sem kunna til verka. Það liggur alveg fyrir. Þeir fara inn á vefinn, eyða og hafa fyrir því að tæma úr ruslinu og eyða greinunum. Það er engin tilviljun fólgin í þessu,” sagði Reynir í samtali við Vísi. Aðspurður um hvort einhverjir lægju undir grun nefndi Reynir Róbert Wessman. „Það er svo annar kapítúli. Við höfum verið að birta greinar um Róbert Wessman, sem hefur verið mjög ósáttur og viljað fá öll gögn sem ég bý yfir. Við sögðum frá því að lögfræðistofa í London sem kostar ekkert smáræði, sama stofa og vann fyrir Harvey Weinstein, er að vinna fyrir þá í því að krefja okkur um öll gögn sem snúa að Róbert Wessman. Nú get ég ekki látið blessaðan karlinn hafa þessi gögn. Þetta er allt horfið.” Í yfirlýsingu Róberts segir að honum hafi þótt umfjöllun Reynis og Mannlífs um sig og þau fyrirtæki sem hann stýri, afar óvægin. Umfjöllunin hafi einnig verið ófagleg og ítrekað verið ósönn. „Ég hef ítrekað óskað eftir leiðréttingum á rangfærslum og að fá ákveðin persónugreinanleg gögn afhent. Hingað til hefur þó hvorki verið brugðist við óskum um leiðréttingar né afhendingu gagna“ segir Róbert. Hann segir enn fremur að honum myndi aldrei koma í hug að beita aðferðum eins og nú sé „hermt upp á“ hann. „Ég hef hins vegar kært umfjöllun Reynis og Mannlífs til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands því ég trúi því og treysti að þær leiðir sem fólk hefur til að verjast ósanngjarnri umfjöllun sé í gegnum slíkt ferli þar sem bein samskipti hafa hingað til ekki dugað,“ segir Róbert. Hann segist vonast til þess að Reynir fái öll sín gögn aftur og að tjón hans verði bætt. Yfirlýsingin í heild sinni: Í gær var brotist inn á ritstjórnarskrifstofu Mannlífs. Ég vona svo sannarlega að lögreglan taki málið föstum tökum og nái þeim sem þetta gerðu sem allra fyrst. Árásir á fjölmiðla eru aðför að lýðræðinu og eiga ekki að líðast. Ég er knúin til að tjá mig um málið þar sem að það hefur verið ýjað að því að ég hafi komið að þessu innbroti sem er fráleitt. Mér hefur þótt umfjöllun Reynis Traustasonar og Mannlífs um mig og þau fyrirtæki sem ég stýri afar óvægin, ófagleg og margítrekað ósönn. Ég hef ítrekað óskað eftir leiðréttingum á rangfærslum og að fá ákveðin persónugreinanleg gögn afhent. Hingað til hefur þó hvorki verið brugðist við óskum um leiðréttingar né afhendingu gagna. Mér myndi aldrei koma í hug að beita nokkrum af þeim aðferðum sem nú er hermt upp á mig. Ég hef hins vegar kært umfjöllun Reynis og Mannlífs til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands því ég trúi því og treysti að þær leiðir sem fólk hefur til að verjast ósanngjarnri umfjöllun sé í gegnum slíkt ferli þar sem bein samskipti hafa hingað til ekki dugað. Ég vona að Reynir fái öll sín gögn aftur og að tjón hans verði bætt. Virðingarfyllst, Róbert Wessman Fjölmiðlar Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Fleiri fréttir Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Sjá meira
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Wessman, sem er forstjóri Alvogen og stjórnarformaður Alvotech, sem hann segist knúinn til að senda frá sér. Það sé vegna þess að ýjað hafi verið að því að hann hafi komið að innbrotinu. Sagt var frá því í gær að brotist hefði verið inn í bíl Reynis Traustasonar, ritstjóra Mannlífs, og þar hafi þjófarnir komið höndum yfir lykla að skrifstofum miðilsins. Reynir sagði að um „útsendara“ væri að ræða og þeir hefðu farið inn á skrifstofurnar og eytt öllu út af fréttasíðunni, sem lá niðri um tíma í gær. „Þetta eru menn sem kunna til verka. Það liggur alveg fyrir. Þeir fara inn á vefinn, eyða og hafa fyrir því að tæma úr ruslinu og eyða greinunum. Það er engin tilviljun fólgin í þessu,” sagði Reynir í samtali við Vísi. Aðspurður um hvort einhverjir lægju undir grun nefndi Reynir Róbert Wessman. „Það er svo annar kapítúli. Við höfum verið að birta greinar um Róbert Wessman, sem hefur verið mjög ósáttur og viljað fá öll gögn sem ég bý yfir. Við sögðum frá því að lögfræðistofa í London sem kostar ekkert smáræði, sama stofa og vann fyrir Harvey Weinstein, er að vinna fyrir þá í því að krefja okkur um öll gögn sem snúa að Róbert Wessman. Nú get ég ekki látið blessaðan karlinn hafa þessi gögn. Þetta er allt horfið.” Í yfirlýsingu Róberts segir að honum hafi þótt umfjöllun Reynis og Mannlífs um sig og þau fyrirtæki sem hann stýri, afar óvægin. Umfjöllunin hafi einnig verið ófagleg og ítrekað verið ósönn. „Ég hef ítrekað óskað eftir leiðréttingum á rangfærslum og að fá ákveðin persónugreinanleg gögn afhent. Hingað til hefur þó hvorki verið brugðist við óskum um leiðréttingar né afhendingu gagna“ segir Róbert. Hann segir enn fremur að honum myndi aldrei koma í hug að beita aðferðum eins og nú sé „hermt upp á“ hann. „Ég hef hins vegar kært umfjöllun Reynis og Mannlífs til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands því ég trúi því og treysti að þær leiðir sem fólk hefur til að verjast ósanngjarnri umfjöllun sé í gegnum slíkt ferli þar sem bein samskipti hafa hingað til ekki dugað,“ segir Róbert. Hann segist vonast til þess að Reynir fái öll sín gögn aftur og að tjón hans verði bætt. Yfirlýsingin í heild sinni: Í gær var brotist inn á ritstjórnarskrifstofu Mannlífs. Ég vona svo sannarlega að lögreglan taki málið föstum tökum og nái þeim sem þetta gerðu sem allra fyrst. Árásir á fjölmiðla eru aðför að lýðræðinu og eiga ekki að líðast. Ég er knúin til að tjá mig um málið þar sem að það hefur verið ýjað að því að ég hafi komið að þessu innbroti sem er fráleitt. Mér hefur þótt umfjöllun Reynis Traustasonar og Mannlífs um mig og þau fyrirtæki sem ég stýri afar óvægin, ófagleg og margítrekað ósönn. Ég hef ítrekað óskað eftir leiðréttingum á rangfærslum og að fá ákveðin persónugreinanleg gögn afhent. Hingað til hefur þó hvorki verið brugðist við óskum um leiðréttingar né afhendingu gagna. Mér myndi aldrei koma í hug að beita nokkrum af þeim aðferðum sem nú er hermt upp á mig. Ég hef hins vegar kært umfjöllun Reynis og Mannlífs til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands því ég trúi því og treysti að þær leiðir sem fólk hefur til að verjast ósanngjarnri umfjöllun sé í gegnum slíkt ferli þar sem bein samskipti hafa hingað til ekki dugað. Ég vona að Reynir fái öll sín gögn aftur og að tjón hans verði bætt. Virðingarfyllst, Róbert Wessman
Í gær var brotist inn á ritstjórnarskrifstofu Mannlífs. Ég vona svo sannarlega að lögreglan taki málið föstum tökum og nái þeim sem þetta gerðu sem allra fyrst. Árásir á fjölmiðla eru aðför að lýðræðinu og eiga ekki að líðast. Ég er knúin til að tjá mig um málið þar sem að það hefur verið ýjað að því að ég hafi komið að þessu innbroti sem er fráleitt. Mér hefur þótt umfjöllun Reynis Traustasonar og Mannlífs um mig og þau fyrirtæki sem ég stýri afar óvægin, ófagleg og margítrekað ósönn. Ég hef ítrekað óskað eftir leiðréttingum á rangfærslum og að fá ákveðin persónugreinanleg gögn afhent. Hingað til hefur þó hvorki verið brugðist við óskum um leiðréttingar né afhendingu gagna. Mér myndi aldrei koma í hug að beita nokkrum af þeim aðferðum sem nú er hermt upp á mig. Ég hef hins vegar kært umfjöllun Reynis og Mannlífs til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands því ég trúi því og treysti að þær leiðir sem fólk hefur til að verjast ósanngjarnri umfjöllun sé í gegnum slíkt ferli þar sem bein samskipti hafa hingað til ekki dugað. Ég vona að Reynir fái öll sín gögn aftur og að tjón hans verði bætt. Virðingarfyllst, Róbert Wessman
Fjölmiðlar Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Fleiri fréttir Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Sjá meira