Steinunn til Háskólans á Bifröst

Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir Mynd af vef Háskólans á Bifröst

Steinunn Stefánsdóttir hefur verið ráðin í hlutastarf sem upplýsingafulltrúi og vefstjóri Háskólans á Bifröst.

Steinunn er með BA-próf í almennum málvísindum og íslensku og kennsluréttindi frá Háskóla Íslands og leggur nú stund á meistaranám í þýðingafræði við sama skóla. Steinunn hefur starfað við framhaldsskólakennslu, verið upplýsingafulltrúi Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur (nú Skóla- og frístundasvið), blaðamaður og aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins. Undanfarin ár hefur hún verið sjálfstætt starfandi þýðandi, blaðamaður, ritstjóri og prófarkalesari. Steinunn hefur meðal annars setið í stjórn Samtaka um kvennaathvarf og Kvenréttindafélags Íslands og verið formaður beggja félaga. Þá situr hún í stjórn Íslenskrar málnefndar.

Vefstjóri og upplýsingafulltrúi hefur meðal annars með höndum ritstjórn á vef Háskólans á Bifröst og skrifar fréttir úr starfi skólans og kemur þeim á framfæri við fjölmiðla, að því er segir á vef Háskólans á Bifröst.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson