Hrista upp í skipulagi Icelandair Group til að bregðast við breyttri heimsmynd Atli Ísleifsson skrifar 23. nóvember 2021 11:02 Sölu- og þjónustusviði verður skipt upp í tvö svið. Vísir/Vilhelm Breytingar hafa verið gerðar á skipulagi Icelandair Group þar sem markmiðið að vera með enn skýrari áherslu á stefnu félagsins þegar kemur að sjálfbærum vexti, stafrænni umbreytingu og áherslu á upplifun viðskiptavina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem birt var í Kauphöll rétt í þessu. Þar segir meðal annars að sölu- og þjónustusviði verði skipt upp í tvö svið - svið þjónustu- og markaðsmála annars vegar og svið leiðakerfis og sölu. Tómas Ingason, framkvæmdalstjóri viðskiptaþróunar og stafrænnar umbreytingar, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þess síðarnefnda en til stendur að auglýsa eftir framkvæmdastjóra sviðs þjónustu- og markaðsmála. Ekki er langt síðanað tilkynnt var að Birna Ósk Einarsdóttir hafi hætt sem framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá Icelandair Group. Um skiptingu á sölu- og þjónustusviði í tvö svið segir í tilkynningunni: „Annars vegar er um að ræða svið sem leggur áherslu á upplifun viðskiptavina ásamt því að styrkja Icelandair vörumerkið enn frekar. Framkvæmdastjóri þjónustu- og markaðsmála (e. Chief Customer Officer) mun leiða þetta svið. Hins vegar er um að ræða svið sem leggur áherslu á tekjumyndun félagsins og verður leitt af framkvæmdastjóra leiðakerfis og sölu (e. Chief Revenue Officer). Hið síðarnefnda mun sameina allar tekjudrifnar einingar félagsins, þ.e. stjórnun leiðakerfis, tekjustýringu og sölu. Stafræn umbreyting forgangsmál Svið stafrænnar þróunar mun setja enn meiri áherslu á stafræna umbreytingu félagsins og verður leitt af framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar (e. Chief Digital Officer). Þetta svið mun styðja við allar einingar félagsins í þeirri vegferð að stuðla að einföldu og ánægjulegu ferðalagi fyrir viðskiptavini Icelandair og leggja grunninn að bættri nýtingu gagna við ákvarðanatöku innan félagsins. Skýr áhersla á sjálfbærni og stefnumótun Sjálfbærni er einn af þeim þáttum sem er í forgrunni í langtímastefnu félagsins. Þetta svið verður styrkt enn frekar og staðsett á skrifstofu forstjóra ásamt stefnumótun félagsins. Framkvæmdastjórar Icelandair Cargo og Loftleiða-Icelandic verða áfram fulltrúar þessara dótturfélaga í framkvæmdastjórn. Starfsemi þessara félaga skapar mikilvæga virðisaukningu í flugrekstri félagsins með því að nýta tækifæri í fraktflutningum og leiguflugi. Þá eru þessi félög mikilvæg til að draga úr árstíðasveiflu í rekstri Icelandair Group. Tómas Ingason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu (e. Chief Revenue Officer).Icelandair Tómas Ingason ráðinn framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu Tómas Ingason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu (e. Chief Revenue Officer). Tómas hefur verið framkvæmdalstjóri viðskiptaþróunar og stafrænnar umbreytingar síðan hann kom aftur til liðs við Icelandair á árinu 2019. Hann var framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs WOW air á árunum 2018-2019 og forstöðumaður stafrænnar framtíðar hjá Arion banka á árunum 2016 til 2018. Þá var hann framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá WOW air á árinu 2014. Fyrir þann tíma var hann ráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn og starfaði sem forstöðumaður tekjustýringar og verðlagningar hjá Icelandair til margra ára. Tómas er með MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management í Boston, MSc. gráðu í verkfræði með áherslu á aðfangakeðjur og flugfélög sem og BSc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Ráðningarferli framkvæmdastjóra þjónustu og markaðsmála og framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar hefst nú þegar,“ segir í tilkynningunni. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.Egill Aðalsteinsson Breytt heimsmynd Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group, að félagið búi við breytta heimsmynd vegna áhrifa faraldursins og standi frammi fyrir nauðsyn þess að leggjast öll á eitt til að tryggja sjálfbæra framtíð. „Með skýrri framtíðarsýn og stefnu Icelandair sem studd er með nýju skipulagi félagsins, erum við vel í stakk búin til að takast á við þennan nýja veruleika. Við ætlum okkur að ná árangri til framtíðar með því að tryggja sjálfbæran vöxt félagsins, halda áfram að reka öflugt og sveigjanlegt leiðakerfi, stuðla að framúrskarandi rekstri á öllum sviðum og halda áfram í stafrænni umbreytingu. Undirstaða þessa er reynslumikið og öflugt starfsfólk og sterk fyrirtækjamenning þar sem upplifun viðskiptavinarins er kjarninn í öllu okkar starfi sem og áherslan á framlag okkar til íslensks samfélags, efnahagslífs og umhverfis,” er haft eftir Boga Nils.
Icelandair Fréttir af flugi Vistaskipti Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira