Andersson segir af sér eftir sjö tíma í embætti Atli Ísleifsson skrifar 24. nóvember 2021 16:31 Sænska þingið samþykkti í morgun að Magdalena Andersson yrði nýr forsætisráðherra landsins. Síðan þá hefur mikið dregið til tíðinda. EPA Magdalena Andersson hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Svíþjóðar eftir sjö tíma í embætti. Þetta gerir hún í kjölfar þess að Græningjar tilkynntu að þeir segi skilið við ríkisstjórn landsins eftir að fjárlagafrumvarp borgaralegu flokkanna á þingi, stjórnarandstöðuflokkanna, náði fram að ganga á þinginu í dag.
Andersson, sem varð í morgun fyrsta konan til að taka við embætti forsætisráðherra Svíþjóðar, tilkynnti um afsögnina þar sem þörf er á nýrri atkvæðagreiðslu um nýjan forsætisráðherra sökum ákvörðunar Græningja að hverfa úr ríkisstjórn. Stjórnarskrá gerir ráð fyrir að forsætisráðherra segi formlega af sér, fari svo að flokkur hverfi úr samsteypustjórn. Hún sagðist þú reiðubúin að leiða minnihlutastjórn Jafnaðarmannaflokksins, en til þess þarf nýja atkvæðagreiðslu á þinginu þar sem meirihluti þingmanna þarf að umbera þann sem þingforseti tilnefnir til forsætisráðherra, það er ekki greiða atkvæði gegn viðkomandi. Leiðtogar Græningja, þau Per Bolund og Märta Stenevi, greindu frá ákvörðun Græningja að segja skilið við ríkisstjórnina á blaðamannafundi síðdegis í dag og rökstuddu málið á þann veg að flokkurinn gæti ekki hugsað sér að stýra landinu á fjárlögum sem hægriöfgaflokkur hafi komið að. Vísuðu þau þar til Svíþjóðardemókrata, en þeir lögðu fram sameiginlegt fjárlagafrumvarp ásamt hægriflokknum Moderaterna og Kristilegum demókrötum. Bolund og Stenevi sögðust jafnframt mjög vonsvikin með ákvörðun Miðflokksins, sem hefur varið stjórnina falli, að leggja fram sitt eigið fjárlagafrumvarp sem varð til þess að fjárlagafrumvarp stjórnarandstöðunnar varð ofan á. Þar sem Græningjar hverfa nú úr ríkisstjórn þarf nýja atkvæðagreiðslu um forsætisráðherra og segjast þau Bolund og Stenevi reiðubúin að greiða atkvæði með Andersson, verði hún tilnefnd af þingforseta á nýjan leik. Andersson hafði gegnt embætti fjármálaráðherra Svíþjóðar frá árinu 2014. Stefan Löfven tilkynnti í haust að hann hugðist segja af sér sem forsætisráðherra og formaður Jafnaðarmannaflokksins í tengslum við flokksþing Jafnaðarmannaflokksins sem fram fór í byrjun þessa mánaðar. Var Andersson valinn nýr formaður á þinginu og tók svo við sem forsætisráðherra í morgun.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Tengdar fréttir Fyrst kvenna til að gegna embætti forsætisráðherra í Svíþjóð Magdalena Andersson, formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, er nýr forsætisráðherra Svíþjóðar. Hún tekur við embættinu af Stefan Löfven og er jafnframt fyrsta konan í sögu landsins til að gegna embættinu. 24. nóvember 2021 09:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Sjá meira
Fyrst kvenna til að gegna embætti forsætisráðherra í Svíþjóð Magdalena Andersson, formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, er nýr forsætisráðherra Svíþjóðar. Hún tekur við embættinu af Stefan Löfven og er jafnframt fyrsta konan í sögu landsins til að gegna embættinu. 24. nóvember 2021 09:07