Fær sjálf að taka upp nafnið Lán en hryssan ekki Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. nóvember 2021 19:12 Þeba Björt Karlsdóttir og hryssan hennar, Lán. Samsett Hestaeigandi á Austurlandi furðar sig á því að fá ekki að nefna hryssu sína Lán. Hestanafnanefnd hafnaði nafninu vegna þess að það er hvorugkynsorð - en hægðarleikur var hins vegar að fá það samþykkt hjá mannanafnanefnd.
Síðan árið 2017 hefur þurft blessun tveggja manna hestanafnanefndar til að fá hreinræktuð hross skráð í gagnabankann WorldFeng. Nefndin var sett á laggirnar af „illri nauðsyn“, líkt og það var orðað í fréttum á sínum tíma, en bera tók á því að hestaeigendur nefndu hross sín klúrum nöfnum. Það vakti athygli árið 2017 þegar nefndin hafnaði nafninu Mósan með greini - sem síðar náði þó fram að ganga. Datt ekki í hug að hestanafnanefnd væri til En kynnum þá til sögunnar Lán, mósótta vetrargamla hryssu, frá Álftafirði á Austurlandi. Þeba Björt Karlsdóttir eigandi hennar óskaði eftir því í byrjun mánaðar að fá nafnið samþykkt hjá hestanafnanefnd. Nafnið beygist eins og kvenmannsnafnið Rán, þ.e. Lán, um Lán, frá Lán til Lánar. En nefndin hafnaði nafninu. „Af því að þetta er hvorugkynsnafnorð en ekki kvenkynsnafnorð,“ segir Þeba um rökstuðning nefndarinnar. „En mér datt ekki í hug að það væri til eitthvað sem héti hestanafnanefnd.“ Lán á beit með félaga sínum.úr einkasafni „Gjörsamlega út í hött“ Þebu, ósáttri við þessar lyktir málsins, var þá bent á að senda erindi vegna nafnsins á ensku til stjórnar WorldFengs. Hún á von á svari þaðan nú í vikunni. „En á sama tíma þá sendi ég inn til mannanafnanefndar beiðni um að fá að taka upp nafnið Lán. Og það var samþykkt núna. Þannig að ég má heita Lán, en ekki merin mín,“ segir Þeba. Mannanafnanefnd komst að þeirri niðurstöðu að nafnið Lán í kvenkyni tæki íslenskri beygingu í eignarfalli og uppfyllti þar með ákvæði mannanafnalaga. Þeba kveðst þrátt fyrir allt bjartsýn á framhaldið. „Mönnum finnst þetta gjörsamlega út í hött. Fyrst að þetta er komið í mannanafnefnd og orðið kvenkyns nafnorð þá hlýt ég að mega nefna merina mína þessu nafni.“
Dýr Mannanöfn Hestar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira