Ekki einungis hægt að vísa ábyrgð á launafólk

Katrín Jakobsdóttir segir atvinnulíf og stjórnvöld bera mikla ábyrgð á bráttunni við verðbólguna og að ekki sé hægt að vísa ábyrgðinni eingöngu á launafólk í komandi kjarasamningum.

Í ávarpi sínu fór Katrín yfir þann lærdóm sem hægt er að draga af kórónuveirufaraldrinum, meðal annars að samheldni samfélagsins hafi reynst okkar mestu verðmæti.
Í ávarpi sínu fór Katrín yfir þann lærdóm sem hægt er að draga af kórónuveirufaraldrinum, meðal annars að samheldni samfélagsins hafi reynst okkar mestu verðmæti.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ávarp­aði Við­skipta­þing í dag í fyrsta sinn í tvö ár. Þar sagði hún atvinnu­líf og stjórn­völd bera mikla ábyrgð á bar­átt­unni gegn verð­bólg­unni og að ekki væri ein­göngu hægt að vísa ábyrgð á launa­fólk í kom­andi kjara­samn­ingum ef það fengi að horfa upp á him­in­háar launa­greiðslur til topp­anna eða him­in­háar arð­greiðslur til eig­enda fyr­ir­tækja.

Í ávarpi sínu fór Katrín yfir þann lær­dóm sem hægt er að draga af kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um, meðal ann­ars að sam­heldni sam­fé­lags­ins hafi reynst okkar mestu verð­mæti. Við nýjar áskor­anir þyrftum við að reiða okkur á þessa sömu sam­heldni.

Í bar­átt­unni gegn verð­bólg­unni verði allir að leggja sitt af mörk­un­um, og atvinnu­lífið geti stutt við þetta verk­efni með sinni fram­göngu. Stjórn­völd muni svo sann­ar­lega leggja sitt af mörkum með því að fylgja eftir þeirri lang­tíma­sýn á hús­næð­is­mark­að­inn sem kynnt var í gær.

Auglýsing

Íslensku­kennslu á vinnu­tíma

Þá tók Katrín sér­stak­lega upp mál­efni inn­flytj­enda á íslenskum vinnu­mark­aði og sagði inn­flytj­endur hátt í 20 pró­sent íbúa á Íslandi og atvinnu­þátt­taka þeirra væri með því mesta sem ger­ist. Það væri skylda okkar að virkja þau til þátt­töku í sam­fé­lag­inu og ein mik­il­væg­asta leiðin til þess er að tryggja þeim íslensku­kennslu, til dæmis á vinnu­tíma.

Að lokum ræddi hún lofts­lags­vá­na, sem hvergi hafi farið þrátt fyrir heims­far­aldur og stríð í álf­unni. Stjórn­völd hafi í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins kynnt enn metn­að­ar­fyllri mark­mið en áður. Til þess að þau náist þurfi öll að leggja sitt af mörkum og þátt­taka atvinnu­lífs­ins í þessu verk­efni geti skipt sköpum fyrir fram­tíð­ina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent