Maður lést eftir vinnuslys í Ásahreppi

mbl.is

Alvarlegt vinnuslys varð síðastliðinn föstudag á sveitabýli í Ásahreppi í Rangárvallasýslu. Verið var að vinna við dráttarvél og klemmdist þar maður sem lést af sárum sínum á vettvangi.

Ekki er unnt að greina frekar frá tildrögum slyssins að svo stöddu.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert