Viðskipti með bréf Alvotech hafin á Íslandi Árni Sæberg skrifar 23. júní 2022 10:09 Róbert Wessman er stjórnarformaður og stofnandi Alvotech. Alvotech Hlutabréf Alvotech verða tekin til viðskipta á Nasdaq First North Growth markaðnum í Reykjavík í dag. Félagið var skráð á markað í Bandaríkjunum fyrir viku síðan en um er að ræða fyrsta félagið sem skráð er á markað hér á landi og vestanhafs samtímis.
Í tilefni skráningar félagsins á markað mun Róbert Wessman,, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech hringja lokabjöllu Nasdaq markaðarins í Reykjavík í dag. Athöfnin fer fram í höfuðstöðvum Alvotech í Vatnsmýrinni að viðstaddri stjórn, starfsfólki og gestum. Sýnt verður beint frá athöfninni í streymi hér á Vísi en hún hefst klukkan 15:15. „Það er okkur mikil ánægja að ljúka fyrstu tvíhliða skráningu íslensks fyrirtækis í Bandaríkjunum og á Íslandi og að hafa náð þessum áfanga aðeins viku eftir að viðskipti hófust með bréf félagsins í New York. Á síðustu 10 árum höfum við fjárfest fyrir meira en einn milljarð Bandaríkjadala í fullkominni aðstöðu til að þróa og framleiða líftæknihliðstæðulyf í miklu magni. Þetta gerir því frábæra teymi sem starfar hjá Alvotech nú mögulegt að mæta vaxandi eftirspurn sjúklinga um allan heim eftir ódýrari hliðstæðum við dýr líftæknilyf,“ er haft eftir Róberti í fréttatilkynningu um skráninguna. Félagið var skráð á markað að loknum samruna við sérhæfða yfirtökufélagið Oaktree Aquisitions Corp. II, en hluthafar þess samþykktu samrunar á hluthafafundi þann 7. júní síðastliðinn. Alvotech hefur þegar samið um aðgengi að fjármögnun til mæta útflæði vegna innlausnar Oaktree Acquisition Corp. II til hluthafa.
Kauphöllin Líftækni Alvotech Tengdar fréttir Samþykktu samruna Alvotech og Oaktree Hluthafafundur í sérhæfða yfirtökufélaginu Oaktree Acquisition Corp. II samþykkti í dag samruna við Alvotech S.A. og Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum. Þá verður Alvotech skráð á markað í Bandaríkjunum þann 16. júní. 7. júní 2022 23:37 Hækkar verðmatið á Alvotech í 630 milljarða rétt fyrir skráningu á markað Heildarvirði íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem verður skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi síðar í þessum mánuði, er metið á um 4,95 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 630 milljarða króna, í uppfærðu verðmati bandaríska fjárfestingabankans Nortland Capital á félaginu. 3. júní 2022 07:57 Hefur „óbilandi trú“ á Alvotech þótt aðstæður á markaði séu erfiðar Hlutabréf íslenska fyrirtækisins Alvotech, sem hefur unnið að þróun líftæknilyfja frá stofnun þess fyrir um áratug og kostað til um einn milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði yfir 130 milljarða króna, verða tekin til viðskipta í NASDAQ kauphöllinni, stærsta hlutabréfamarkaði heims, í New York eftir hádegi í dag. Alvotech verður með því eina íslenska félagið sem er á bandarískum hlutabréfamarkaði. 16. júní 2022 06:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira
Samþykktu samruna Alvotech og Oaktree Hluthafafundur í sérhæfða yfirtökufélaginu Oaktree Acquisition Corp. II samþykkti í dag samruna við Alvotech S.A. og Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum. Þá verður Alvotech skráð á markað í Bandaríkjunum þann 16. júní. 7. júní 2022 23:37
Hækkar verðmatið á Alvotech í 630 milljarða rétt fyrir skráningu á markað Heildarvirði íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem verður skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi síðar í þessum mánuði, er metið á um 4,95 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 630 milljarða króna, í uppfærðu verðmati bandaríska fjárfestingabankans Nortland Capital á félaginu. 3. júní 2022 07:57
Hefur „óbilandi trú“ á Alvotech þótt aðstæður á markaði séu erfiðar Hlutabréf íslenska fyrirtækisins Alvotech, sem hefur unnið að þróun líftæknilyfja frá stofnun þess fyrir um áratug og kostað til um einn milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði yfir 130 milljarða króna, verða tekin til viðskipta í NASDAQ kauphöllinni, stærsta hlutabréfamarkaði heims, í New York eftir hádegi í dag. Alvotech verður með því eina íslenska félagið sem er á bandarískum hlutabréfamarkaði. 16. júní 2022 06:00