Leggja til hækkun vaxta- og barnabóta

Kristrún Frostadóttir kynnti tillögurnar í dag.
Kristrún Frostadóttir kynnti tillögurnar í dag. Ljósmynd/Samfylkingin

Samfylkingin leggur meðal annars til þær breytingartillögur við fjárlög ríkisstjórnarinnar að fallið verði frá gjaldahækkunum, vaxtabætur til millitekjufólks hækki um 50 prósent, að barnabætur til fjölskyldna hækki og að húsnæðisbætur til leigjenda verði hækkaðar tímabundið um tíu prósent.

Einnig eru lagðar til þær breytingar að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður um þrjú prósent og að lækkun á bankaskatti verður afturkölluð að hluta, að fram kemur í tilkynningu.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, kynnti breytingartillögurnar í dag, en um er að ræða kjarapakka með tillögum sem falla í tvo flokka sem bera yfirskriftina: „Verjum heimilisbókhaldið“ og „Vinnum gegn verðbólgu“.

Allt aðhald sé lagt á almenning

Haft er eftir Kristrúnu að Samfylkingin vilji færa aðhaldið af almenningi og þangað sem þenslan er í raun.

„Allt aðhald ríkisstjórnarinnar er lagt á almenning. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hækkar skatta með hækkun krónutölugjalda sem falla þyngra á fólk eftir því sem það hefur lægri tekjur. Samfylkingin vill sýna að það er hægt að fara aðra leið í þessum efnum,“ segir Kristrún, en Samfylkingin mun fylgja kjarapakkanum eftir á Alþingi á næstu dögum með því að leggja fram breytingartillögur við fjárlög ríkisstjórnarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá allar tillögurnar:

Verjum heimilisbókhaldið

13 milljarðar í kjarabætur

 

Falla frá gjaldahækkunum ríkisstjórnar

 

  *   Krónutölugjöld hækki um 2,5% í stað 7,7% á milli ára

 

Hækka húsnæðisbætur til leigjenda

 

  *   Hækkun um 10% og tímabundin leigubremsa að danskri og skoskri fyrirmynd

 

Hækka vaxtabætur til millitekjufólks

 

  *   Eignaskerðingamörk hækki um 50% eins og íbúðaverð frá 2020

 

Hækka barnabætur til fjölskyldna

 

  *   Þrír milljarðar til hækkunar á fjárhæð með barni og viðmiðunarmörkum

 

Tvöfalda framlög til uppbyggingar

 

  *   Stofnframlög til íbúðauppbyggingar verði ekki helminguð heldur tvöfölduð 2023

 

 

Vinnum gegn verðbólgu

17 milljarðar í mótvægisaðgerðir

 

Hækka fjármagnstekjuskatt

 

  *   Hækkun úr 22% í 25% sem fellur nær eingöngu á tekjuhæstu 10% landsmanna

 

Loka „ehf.-gatinu“ svokallaða

 

  *   Takmarka möguleika fólks til að telja launatekjur fram sem fjármagnstekjur

 

Leggja álag á veiðigjöld stórútgerða

 

  *   Hvalrekaskattur á metarðsemi stærri útgerða vegna verðhækkana sjávarafurða

 

Afturkalla bankaskattslækkun að hluta

 

  *   Fjögurra milljarða hækkun á bankaskatti sem var lækkaður um sex milljarða 2020

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert