Stigmagnandi spenna vegna eldflaugaæfinga á Kóreuskaga Heimir Már Pétursson skrifar 15. september 2021 19:20 Farþegar á lestarstöð í Sól höfuðborg Suður Kóreu horfir á frétt um eldflaugaskot Norður Kórumanna á sunnudag. Chung Sung-Jun/Getty Images Eldflaugatilraunir stjórnvalda í Norður Kóreu hafa valdið vaxandi spennu í samskiptum Kóreuríkjanna. Kínverjar, Japanir og Bandaríkjamenn hafa einnig lýst áhyggjum af þróun mála.
Norður Kóreumenn skutu tveimur langdrægum eldflaugum sem geta borið kjarnorkuvopn á loft á sunnudag. Flaugunum var skotið frá miðju landinu og flugu þær í 60 kílómetra hæð um 800 kílómetra út á Japanshaf. Þar með brutu Norður Kóreumenn gegn samþykkt Sameinuðu þjóðanna. Nokkrum klukkustundum síðar skutu Suður Kóreumenn í fyrsta skipti nýrri tegund eldflaugar frá kafbáti og urðu þar með sjöunda þjóðin í heiminum til að búa yfir slíkri tækni. Fullyrt er að þetta eldflaugaskot hafi verið löngu fyrirhugað og það hafi ekki verið beint andsvar við eldflaugatilraunum norðanmanna. Norður Kóreumenn brugðust engu að síður við með því að skjóta skammdrægum eldflaugum á loft í dag. Þessar tilraunir eru ekki til að bæta mikið spennuástand sem nú þegar ríkir í samskiptum asíuríkja, sérstaklega varðandi yfirráð yfir Suðurkínahafi. Katsunobu Kato utanríkisráðherra Japans hefur komið óánægju stjórnvalda í Tokyo með eldflaugatilraunir Norður Kóerumanna á framfæri. Katsunobu Kato utanríkisráðherra Japans fordæmir eldflaugatilraunir Norður Kóreu.Tomohiro Ohsumi/Getty Images „Japönsk stjórnvöld hafa fordæmt eldflaugaskot Norður Kóreu og komið þeim sjónarmiðum á framfæri við stjórnvöld þar í gegnum sendiráð okkar í Peking. Þá höfum við haft náið samráð við stjórnvöld í Bandaríkjunum og Suður Kóreu frá því eldflaugunum var skotið á loft á sunnudag,“ segir Kato. Spennan á Kóreuskaga snertir einnig nágrannaríkin Kína og Japan. Sendimenn Bandaríkjanna, Japans og Suður Kóreu fyrir málefni Norður Kóreu funduðu í Tokyo í dag um stöðu mála og utanríkisráðherrar Kína og Suður Kóreu funduðu í Sól. Wang Yi utanríkisráðherra Kína segir mikilvægt að stuðla að stöðugleika á Kóreuskaga. „Við viljum auðvitað leggja okkar af mörkum til að stuðla að friði og stöðugleika á Kóreuskaga. En Norður Kórea er ekki ein um hernaðaraðgerðir á svæðinu. Fleiri ríki eiga þar hlut að máli. Þannig að allir aðilar ættu að leggjast á eitt um að koma á ný á viðræðum þeirra á milli,“ segir utanríkisráðherra Kína.
Norður-Kórea Suður-Kórea Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Sjá meira