Finnskur þingmaður sóttur til saka vegna ummæla um samkynhneigða Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. janúar 2022 13:08 Päivi Räsänen hefur verið ákærð fyrir hatursorðræðu gegn samkynhneigðum. EPA/MARKKU OJALA Finnskur þingmaður og fyrrverandi innanríkisráðherra mætti fyrir dóm í dag, ákærður fyrir hatursorðræðu gegn samkynhneigðum. Málið snýst um athugasemdir sem þingmaðurinn lét falla um að samkynhneigð væri þroskaröskun og synd.
Päivi Räsänen hefur verið þingmaður fyrir kristilega demókrata frá árinu 1995 en er þar að auki menntaður læknir. Málið sem höfðað hefur verið gegn henni snýst um tvö ummæli sem hún lét falla, annars vegar í skoðanagrein sem birtist á netinu árið 2004 þar sem hún sagði samkynhneigð þroskaröskun og vegna tísts sem hún birti árið 2019 þar sem hún sagði samkynhneigð synd. Saksóknari vísaði til þess í dómssal í dag að Räsänen hafi þar að auki sagt í viðtali á útvarpsstöðinni Yle árið 2019 að samkynhneigð væri birtingarmynd genetískrar úrkynjunar. Räsänen hefur neitað því að hafa gert nokkuð rangt og vill meina að mál ákæruvaldsins sé byggt á veikum grunni. Samkvæmt umfjöllun Reuters um málið mun héraðsdómi Helsinki ekki aðeins falla það í skaut að ákvarða hvort ummælin séu hatursorðræða heldur þurfi hann að ákvarða hvort að í sumum tilfellum teljist það glæpur að nota Biblíuna sem áreiðanlega heimild. „Ég finn mikla ábyrðgartilfinningu vegna þess að ég veit að þetta mál gæti verið fordæmisgefandi hvað varðar tjáningarfrelsi og trúarlegt frelsi,“ segir Räsänen í skriflegu svari við fyrirspurn Reuters um málið. „Það er klárt mál að kristnir sem fylgja reglum Biblíunnar hafa rétt til þess að taka þátt í opinberri umræðu.“ Í fyrrnefndri skoðanagrein, sem birtist árið 2004, hélt Räsänen því fram að vísindaleg gögn sönnuðu það án efa að samkynhneigð væri röskun á þróun kynhneigðar fólks. Þá ýjaði hún að því að ættu karlmenn í samkynja samböndum snemma á lífsleiðinni leiddi það til þess að þeir yrðu kynferðisofbeldismenn. Í fyrrnefndu tísti sem Räsänen birti árið 2019 gagnrýndi hún finnsku kirkjuna fyrir að hafa tekið þátt í skipulaggningu Gleðigöngu og birti jafnframt tilvitnun í Biblíuna, þar sem samkynja sambönd eru gagnrýnd. Saksóknarar fara fram á að Räsänen verði gert að greiða sekt fyrir ummælin og að útvarpsstöðinni Yle verði gert að fjarlægja hluta úr útvarpsþættinum af netinu.
Finnland Hinsegin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira