Innlent

Mos­fells­bær kærir deili­skipu­lags­breytingu á Esju­melum

Sylvía Hall skrifar
Til stendur að reisa malbikunarstöð á Esjumelum.
Til stendur að reisa malbikunarstöð á Esjumelum.

Mosfellsbær hefur kært deiliskipulagsbreytingu Reykjavíkurborgar á Esjumelum til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Með breytingunni verður heimilt að reisa nýja malbikunarstöð á svæðinu.

Mosfellsbær mótmælti breytingunni í vor og sögðu starfsemi af þessum toga stangast á við heimildir gildandi aðalskipulags. Starfsemin myndi jafnframt hafa neikvæð umhverfis- og sjónræn áhrif í för með sér sem myndu skerða gæði þessa vinsæla útivistarsvæðis.

Í svari borgarinnar við mótmælum Mosfellsbæjar sagði að breyting á aðalskipulagi fyrir Esjumela heimilaði iðnaðarstarfsemi með skýrum hætti, að undangengnu mati á umhverfisáhrifum. Þá væru neikvæð áhrif lágmörkuð og breytingartillagan hefði óveruleg áhrif á umhverfið.

Á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar þann 1. júlí lýsti áheyrnarfulltrúi Miðflokks framkvæmdunum sem aðför að útivistarfólki. Lögðu fulltrúar Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar fram gagnbókun þar sem þau sögðu malbikunarstöðvar mikilvægar og framkvæmdin myndi gagnast öllu höfuðborgarsvæðinu.

„Í ljósi þess að takmarkað framboð er af iðnaðarsvæðum á höfuðborgarsvæðinu teljum við að atvinnusvæðið við Esjumela sé heppilegt fyrir rekstur slíkrar stöðvar. Við vekjum ennfremur athygli á að allt höfuðborgarsvæðið kemur til með að njóta góðs af þessari starfsemi.“

Óalgeng en nauðsynleg leið að kæra 

Í fréttatilkynningu frá Mosfellsbæ er því haldið fram að umrædd áform Reykjavíkurborgar séu hluti af stærra máli. Reykjavíkurborg hafi einnig úthlutað lóð til moltugerðar á Esjumelum, Mosfellingum til mikils ama.

„Á Álfsnesi hafa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu í góðri samvinnu unnið að stærsta einstaka umhverfisverkefni síðari tíma sem er gas- og jarðgerðarstöðin GAJA sem vinnur úr lífrænum úrgangi í lokuðu mannvirki. Til þessa verkefnis hefur verið varið milljörðum en á sama tíma hefur Reykjavíkurborg úthlutað lóð þar sem fram mun fara moltugerð undir berum himni á Esjumelum, áform sem Mosfellsbær getur ekki sætt sig við enda fylgir moltugerð og annarri úrvinnslu lífræns úrgangs undir berum himni lyktamengun sem ekki verður við unað,“ segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í tilkynningunni.

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.Vísir/Vilhelm

Þessum áhyggjum hafi verið komið á framfæri við Reykjavíkurborg, meðal annars á formlegum fundi með borgarstjóra. Það hafi ekki skilað árangri og því hafi verið farið þá leið að kæra borgina, þó það sé ekki algengt í samskiptum sveitarfélaga.

Þá segir einnig í tilkynningunni að í vinnslu sé önnur deiliskipulagsbreyting á svæðinu sem felur í sér heimild fyrir aðra malbikunarstöð. Markmiðið sé að „auka framboð lóða fyrir mengandi iðnað“ og að Reykjavíkurborg haldi því fram að malbikunarstöð rúmist innan aðalskipulags. Hún uppfylli jafnframt allar kröfur til mengunarvarna.

„Það er í ósamræmi við skilgreiningu í gögnum borgarinnar þar sem malbikunarstöðvar eru skilgreindar sem „meira mengandi iðnaður“,“ segir í tilkynningunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×