Telur ekki þörf á því að fólk pakki niður í töskur Kristín Ólafsdóttir og Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifa 1. mars 2021 14:29 Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson. Jarðskjálftafræðingur telur ekki þörf á því að fólk pakki niður í töskur til að geta yfirgefið heimili sín í flýti. Borið hefur á umræðu um slíkt á samfélagsmiðlum meðal íbúa á suðvesturhorninu, þar sem mikil jarðskjálftahrina hefur staðið yfir síðan á miðvikudag.
Twitter-notendur, sem margir eru uggandi vegna jarðskjálftanna, hafa síðustu daga velt því upp hvort þörf sé á því að pakka í „neyðartöskur“ og vera þannig viðbúnir því að flýja heimili sín. Notendunum er vissulega mismikil alvara með vangaveltum sínum en nokkur dæmi um slíkt má sjá hér fyrir neðan. Er galin hugmynd að pakka í tösku semi survival kit? Bara auka föt, hleðslubanki, smá snarl og eitthvað in case að man þyrfti að flýja með bumbuna og 3 ára krakka út í bíl?— H(alld)óra. (@halldorabirta) February 27, 2021 119 skjálftar yfir 3 síðust 48 tíma. Er mögulega síðasti aðilinn til að pakka í neyðartösku en ég fer að klára það verk.— Skúli Arnlaugsson (@Arnlaugsson) February 28, 2021 Ertu bui/ð/n/nn að pakka í neyðartösku?— Mattý ✨🪐 (@nei_takk) February 28, 2021 Um kl. 5 í morgun hrökk ég upp við þyrlurnar að hamast fyrir ofan Þingholtin. Kl. 08:08 leið mér eins og rúmið mitt vaggaði úti á sjó, í fyrsta stóra skjálfta dagsins. Þá hvarflaði að mér hvort nú væri kannski ráð að pakka í viðbragðsbakpoka bara svona ef það yrði skyndirýming 😅— Una Sighvatsdóttir (@unasighvats) February 27, 2021 Þá sagði Jakob Jónsson, hafnsögumaður sem búsettur er í Vogum á Vatnsleysuströnd, frá því í samtali við Ríkisútvarpið í gær að hann og fjölskylda hans væru viðbúin því að allt fari á versta veg. Þau væru klár með „flóttatösku“. „[…] ef upp kæmi sú staða að við þyrftum að bruna af stað með skömmum, eða engum fyrirvara,“ sagði Jakob við Ríkisútvarpið. Engin merki um landris, gosóróa eða kvikugas Kristín Jónsdóttir jarðskjálftafræðingur var innt eftir því í hádegisfréttum Bylgjunnar hvort raunveruleg þörf væri á því að fólk pakkaði í töskur og undirbyggi sig undir að yfirgefa heimili sín í flýti. „Ég tel ekki svo vera,“ sagði Kristín. Engin merki eða vísbendingar væru um að eldgos sé yfirvofandi. „Það eru engin merki um landris, sjáum engan gosóróa. Við mælum ekki kvikugas sem væri til marks um kviku,“ sagði Kristín. „Og svo auðvitað, svona sambærilegar hrinur hafa mælst áður og á síðustu öld eru þetta margar hrinur sem hafa mælst. Og það er bara orðið mjög langt síðan síðast. En þessum hrinum hefur ekki fylgt gosvirkni. Þannig að við erum ekki að sjá nein merki sem benda til þess.“
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Tengdar fréttir Snarpur skjálfti á Reykjanesi Snarpur skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu, um klukkan 13:50 í dag. Skrifstofur fréttastofu á Suðurlandsbraut í Reykjavík hristust vel en skjálftinn varði þó nokkuð skemur en stóru skjálftarnir sem urðu í nótt og á laugardagsmorgun. 1. mars 2021 13:53 Svona hljómaði stóri skjálftinn í nótt Stór jarðskjálfti sem reið yfir klukkan hálf tvö í nótt og mældist 4,9 að stærð varði í ríflega tuttugu sekúndur, ef marka má hljóðupptöku úr Hlíðunum í Reykjavík. Upptökuna má finna neðst í fréttinni. 1. mars 2021 12:49 1.500 skjálftar í dag Tæplega 1.500 jarðskjálftar höfðu greinst á mælum Veðurstofu Íslands frá miðnætti til hádegis í dag. Sá stærsti var 4,9 að stærð, klukkan hálf tvö í nótt. 1. mars 2021 13:18 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Fleiri fréttir Stór jarðskjálfti fannst á suðvesturhorninu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Sjá meira
Snarpur skjálfti á Reykjanesi Snarpur skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu, um klukkan 13:50 í dag. Skrifstofur fréttastofu á Suðurlandsbraut í Reykjavík hristust vel en skjálftinn varði þó nokkuð skemur en stóru skjálftarnir sem urðu í nótt og á laugardagsmorgun. 1. mars 2021 13:53
Svona hljómaði stóri skjálftinn í nótt Stór jarðskjálfti sem reið yfir klukkan hálf tvö í nótt og mældist 4,9 að stærð varði í ríflega tuttugu sekúndur, ef marka má hljóðupptöku úr Hlíðunum í Reykjavík. Upptökuna má finna neðst í fréttinni. 1. mars 2021 12:49
1.500 skjálftar í dag Tæplega 1.500 jarðskjálftar höfðu greinst á mælum Veðurstofu Íslands frá miðnætti til hádegis í dag. Sá stærsti var 4,9 að stærð, klukkan hálf tvö í nótt. 1. mars 2021 13:18