Innlent

Lilja undirbýr breytingar á auglýsinga-málum Ríkisútvarpsins

Heimir Már Pétursson skrifar
Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra segir umhverfi fjölmiðla hafa gjörbreyst á undanförnum áratug. Hún vonar að frumvarp hennar um fjölmiðla komi fram á næsta haustþingi.
Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra segir umhverfi fjölmiðla hafa gjörbreyst á undanförnum áratug. Hún vonar að frumvarp hennar um fjölmiðla komi fram á næsta haustþingi. Stöð 2/Arnar

Menningarmálaráðherra er að undirbúa starfshóp til að útfæra breytingar á auglýsingamálum Ríkisútvarpsins með það að markmiði að bæta stöðu einkarekinna fjölmiðla. Þá leggi hún vonandi fram frumvarp í haust um heildarstefnumótun fyrir íslenska fjölmiðla.

Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar telur æskilegt að auglýsingadeild Ríkisútvarpsins verði lögð niður en auglýsendur geti pantað auglýsingar í gegnum vef Ríkisútvarpsins, þar sem fyrir liggi verðskrá sem ekki verði veittur afsláttur af. Þetta kom fram í nefndaráliti meirihlutans sem mælt var fyrir á Alþingi í gær.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að hún leggi áherslu á fölbreytni í flóru fölmiðla með öflugu almannaútvarpi og einkareknum fölmiðlum.Vísir/Vilhelm

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir þetta hafa verið í umræðunni í talsverðan tíma.

„Og ég hef lýst þeirri skoðun minni að ég telji að hægt sé að breyta aðferðarfræði auglýsingadeildarinnar. Þetta hef ég rætt við útvarpsstjóra fyrir talsverðum tíma,“ segir Lilja. Verið væri að ganga frá skipan starfshóps undir formennsku Karls Garðarssonar fyrrverandi fjölmiðlamanns og þingmanns Framsóknarflokksins sem fara eigi yfir útfærslu þessara mála.

En Lilja hefur líka boðað frumvarp um heildarstefnumótun um fjölmiðla og segir undirbúning þess ganga vel.

Lilja Alfreðsdóttir hefur skipað Karl Garðarsson fyrrverandi þingmann Framsóknarflokksins og fjölmiðlamann til að leið starfshóp um breytingar á auglýhsingamálum Ríkisútvarpsins.Vísir

„Það eru ýmsar nýjar tillögur sem koma fram til að styðja við umhverfi fjölmiðla. Ég tel að það lýðræðislega hlutverk sem fjölmiðlar gegna, ekki bara hér á landi heldur alls staðar, sé afar mikilvægt,“ segir ráðherra. Upplýst umræða og aðhald þeirra væri nauðsynleg í lýðræðislegri umræðu. Frumvarpið komi vonandi fram á haustþingi.

Hún segir einnig nauðsynlegt að fjölmiðlar styrktu áskriftartekjur sínar. Þá væri líka unnið að skattalegum breytingum vegna samkeppni viðerlendar efnisveitur.

„Umhverfi fjölmiðla hefur gjörbreyst bara á tíu árum. Vegna þess að auglýsingatekjurnar hafa í auknum mæli verið að renna til erlendra efnisveita. Þess vegna er rekstrarumhverfið erfitt. Vinna sem við erum núna að leggja af stað í með fjármála- og efnahagsráðuneytinu miðar að því að ná betur utan um þetta,“ segir Lilja Alfreðsdóttir.


Tengdar fréttir

Leggja til að leggja niður „aggressíva“ auglýsingadeild RÚV

Meirihluti allsherjar- og menntamálefndar leggur til að auglýsingadeild Ríkisútvarpsins verði lögð niður. Deildin sé agressív í sölumennsku sinni sem einkareknir fjölmiðlar finni fyrir með ýmsum hætti. RÚV verði þó ekki tekið af auglýsingamarkaði því auglýsendur geti áfram pantað auglýsingar í gegnum vef Ríkisútvarpsins samkvæmt verðskrá. Sextán manns starfa á auglýsingadeildinni.

Lilja ætlar ekki að taka RÚV af aug­lýsinga­markaði

Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra – fjölmiðlaráðherra – telur ekki skynsamlegt að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði vegna þess að þá færu auglýsingatekjurnar í auknari mæli til Facebook, Google og YouTube.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×