Skrifa söguna í Tókýó Valur Páll Eiríksson skrifar 21. júlí 2021 22:30 Marta og Formiga hafa farið í gegnum súrt og sætt með landsliðinu í tæpa tvo áratugi. Stuart Franklin - FIFA/FIFA via Getty Images Brasilísku fótboltagoðsagnirnar Marta og Formiga skrifuðu söguna í opnunarleik Ólympíuleikanna í Japan sem Brasilía vann 5-0 gegn Kína í morgun.
Marta skoraði tvö marka Brasilíu í sigrinum á þeim kínversku og var þar með fyrsti fótboltaleikmaðurinn til að skora á fimm Ólympíuleikum í röð, frá því að hún skoraði fyrst í Aþenu 2004. Hinn 35 ára gamli framherji skoraði fyrsta mark Brasilíu í leiknum á níundu mínútu og skoraði það síðara stundarfjórðungi fyrir leikslok. Hún hefur skorað 111 mörk fyrir landsliðið á ferlinum og hefur sex sinnum verið valin besti leikmaður heims. Eftir mörkin tvö í morgun hefur hún skorað alls 12 mörk á Ólympíuferli sínum, og er aðeins tveimur mörkum frá metinu sem landa hennar Cristiane á, upp á 14 mörk. Félagi Mörtu í landsliðinu, miðjumaðurinn Formiga, varð þá fyrsti fótboltamaðurinn, hvort sem er í karla- eða kvennaflokki, til að taka þátt í sjö Ólympíuleikum. Formiga er 43 ára gömul og spilar fyrir Sao Paulo í heimalandinu og var að spila sinn 201. landsleik gegn Kína. Hún spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Brasilíu á HM 1995, þá 17 ára, og tók fyrst þátt á Ólympíuleikunum ári síðar, í Atlanta 1996, þar sem kvennaknattspyrna var í fyrsta sinn á meðal keppnisgreina. Formiga sækist eftir að ná loks í Ólympíugullið en hún hlaut silfur árin 2004 og 2008. Þá féll Brasilía úr leik fyrir Svíþjóð í undanúrslitum leikanna 2016 á heimavelli í Ríó de Janeiro.
Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Enski boltinn „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Enski boltinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ Körfubolti Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Íslenski boltinn „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Körfubolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Handbolti Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Körfubolti Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Enski boltinn Fleiri fréttir Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Juventus í bikarúrslit þrátt fyrir tap Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Gary Martin til Ólafsvíkur Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Ísland hefði mátt taka 26 leikmenn á EM Milan ætlar að reka Pioli „Ég fékk alla vega mat í dag“ Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin Inter Ítalíumeistari eftir sigur á nágrönnum sínum í AC Milan „Sé okkur ekkert þurfa að elta þær“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-0 | Öruggt í fyrsta heimaleik nýja þjálfarans Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Víkingur 1-2 | Nýliðarnir byrja á sigri Glódís Perla og stöllur enn taplausar á toppnum Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Körfubolti
Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Körfubolti