Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson færist nær Íslandsmeistaratitlinum eftir níundu umferðina á Íslandsmótinu sem fram fór í gærkvöld.
Helgi Áss gerði jafntefli við Aleksandr Domalchuk-Jonasson en á sama tíma lagði Hilmir Freyr Heimisson Vignir Vatnar Stefánsson að velli. Þegar tveimur umferðum er ólokið er munurinn 1½ vinningur á milli þeirra.
Vignir verður nú að vinna báðar skákir sínar sem eftir eru og treysta á að Guðmundur Kjartansson tapi ekki gegn Helga í 10. umferðinni. Vignir og Helgi mætast í lokaumferðinni, sem fram fer á morgun.
Hilmir er þriðji með 5½ vinning. Guðmundur Kjartansson, sem vann Hannes Hlífar Stefánsson í gær, er í 4.-5. sæti ásamt Aleksandr með 5 vinninga.
Tíunda og næstsíðasta umferð hefst kl. 15. Helgi teflir við Guðmund og Vignir við Hannes.
Staðan:
1. Helgi Áss Grétarsson 8 v.
2. Vignir Vatnar Stefánsson 6½ v.
3. Hilmir Freyr Heimisson 5½ v.
4..-5. Guðmundu Kjartansson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson 5 v.
6.-8. Dagur Ragnarsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Hannes Hlífar Stefánsson 4½
9. Bárður Örn Birkisson, 3½ v.
10. Héðinn Steingrímsson 3 v. (hættur)
11. Lenka Ptácníková og Olga Prudnykova 2 v.