Til skoðunar hvort gripið verði til aðgerða vegna Hugarafls Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. september 2021 15:58 Ásmundur Einar segist ekki ætla að tjá sig um mál Hugarafls á meðan það sé til skoðunar í ráðuneytinu. Vísir/Vilhelm Félagsmálaráðherra segir til skoðunar hvort og þá til hvaða ráðstafana verði gripið vegna athugasemda fyrrverandi skjólstæðinga grasrótarsamtakanna Hugarafls við framkomu stjórnenda þar á bæ. Einelti og ógnarstjórnun eru orð sem skjólstæðingarnir nota til að lýsa framkomu stjórnenda Hugarafls.
Stefán Þór Stefánsson er í hópnum sem um ræðir og sagði sögu sína í Íslandi í dag í gær. Hann kynntist Hugarafli árið 2015, varð virkur í starfsemi og kynnist unnustu sinni sem svipti sig lífi fyrr á árinu. Unnustan, Tinna Finnsdóttir, hafði verið skjólstæðingur Hugarafls og er að sögn Stefáns ein þeirra sem hlaut mjög ómaklega meðferð af hálfu stjórnenda samtakanna. Stefán segir Tinnu hafa lýst fyrir sér undarlegum uppákomum og hegðun stjórnanda sem hann kannaðist sjálfur við en hafði þó leitt hjá sér. Það var síðan ekki fyrr en þau Tinna fóru að vera saman sem par, í byrjun þessa árs, sem hann fór að átta sig á að framkoma stjórnanda Hugarafls gagnvart henni hafi ekki verið eðlileg. Frásagnir Tinnu af því andlega ofbeldi sem hún varð fyrir í Hugarafli hafi opnað augu hans fyrir því að umhverfið þarna væri ekki eins og það ætti að vera. Forsvarsmenn Hugarafls hafna þessum ásökunum alfarið. Stjórn samtakanna sagði í yfirlýsingu að hún harmi þessar ásakanir og segir að svo virðist sem þeim sé ætlað að kasta rýrð á samtökin. Félagsmálaráðuneytið styrkti Hugarafl um átta milljónir króna í lok síðasta árs. Sá styrkur snýr að rekstri opins úrræðis þetta ár og það næsta. Í svörum ráðuneytisins í gær kom fram að starfsmenn ráðuneytisins hefðu skoðað þau gögn sem sexmenningarnir sendu og telji ábendingarnar alvarlegar. Enn sé verið að skoða málið og forsvarsmenn Hugarafls verði boðaðir á fund á næstunni. Enn fremur segir þar að þegar öll gögn málsins liggi fyrir verði lagt mat á hvort og þá hvaða áhrif málið muni hafa á frekara samstarf við Hugarafl. Ásmundur Einar var spurður út í eftirlitið hjá samtökum á borð við Hugarafl. Ætlar ekki að ræða málið meðan það er á borði ráðuneytisins „Það er hjá ráðuneytinu og eftir atvikum eftirlitsstofnunum velferðarmála sem heyra undir ráðuneytið. Varðandi þetta mál þá hafa borist erindi til ráðuneytisins. Þetta er auðvitað ekki pólitískt á borði ráðherra heldur er ráðuneytið einfaldlega að fara yfir þetta og kalla til sín aðila. Það er svo sem ekki mikið meira efnislega að segja um þetta mál,“ segir Ásmundur Einar. „Almennt er það svo að þegar svona mál koma upp sem eru í ferli og samskiptum við ráðuneytið hef ég haft þá reglu að tjá mig ekki efnislega um málið á meðan ráðuneytið er að skoða það.“ Engin ástæða sé til að taka pólitískar ákvarðanir á meðan málið er í skoðun. „Það hef ég alltaf haft sem reglu sem ráðherra að á meðan mál er í skoðun, þá er ekki hægt að ræða pólitískar ákvarðanir.“
Félagsmál Geðheilbrigði Tengdar fréttir Kvarta yfir „eitraðri framkomu“ stjórnenda Hugarafls Sex fyrrverandi skjólstæðingar grasrótarsamtakanna Hugarafls sendu nýverið greinargerðir á félagsmálaráðuneytið vegna starfs- og stjórnunarhátta samtakanna og framkomu formanns gagnvart félagsmönnum. Hópurinn segir framkomu stjórnenda samtakanna eitraða og hún lýsi sér meðal annars í einelti og ógnarstjórnun gegn almennum félagsmönnum. 20. september 2021 19:38 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Fleiri fréttir „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Sjá meira
Kvarta yfir „eitraðri framkomu“ stjórnenda Hugarafls Sex fyrrverandi skjólstæðingar grasrótarsamtakanna Hugarafls sendu nýverið greinargerðir á félagsmálaráðuneytið vegna starfs- og stjórnunarhátta samtakanna og framkomu formanns gagnvart félagsmönnum. Hópurinn segir framkomu stjórnenda samtakanna eitraða og hún lýsi sér meðal annars í einelti og ógnarstjórnun gegn almennum félagsmönnum. 20. september 2021 19:38