Skerða orku til fiskimjölsverksmiðja, álvera og gagnavera Eiður Þór Árnason skrifar 6. desember 2021 18:14 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Vilhelm Landsvirkjun hefur ákveðið að skerðing á afhendingu raforku til fiskimjölsverksmiðja taki strax gildi, en ekki í janúar eins og ætlað hafði verið. Skerðingin nær einnig til stórnotenda á borð við gagnaver og álver sem eru með skerðanlega skammtímasamninga.
Í þeim samningum er gert ráð fyrir að til skerðinga geti komið þegar eftirspurn eftir raforku er mjög mikil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun sem hefur þar að auki hafnað öllum óskum nýrra viðskiptavina um orkukaup vegna rafmynta. Nokkrar ástæður eru sagðar fyrir því að skerðingin komi fyrr til framkvæmda en áætlað hafi verið. Til dæmis komi raforkuvinnsla hjá öðrum framleiðanda, sem átti að koma inn í vikunni, ekki inn í kerfið fyrr en í lok næstu viku. Þá nægi full keyrsla í Vatnsfelli ekki til að halda uppi orkuframleiðslu á Þjórsársvæði. Að sögn Landsvirkjunar hefur Krókslón lækkað það mikið að byrjað var að hleypa vatni framhjá Vatnsfelli í dag til að stöðva lækkun, en einnig verði að draga úr orkusölu til að draga úr vinnslu. Loks hafi bilun komið upp í vél í Búrfelli og fyrirséð að hún komi ekki í rekstur fyrr en með vorinu. Frá fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Norðfjarðarhöfn.Vísir/Einar Eftirspurn eftir raforku aukist hratt Vísir greindi frá því í síðustu viku að Landsvirkjun hafi gripið til þess ráðs að skerða tímabundið raforku til fiskimjölsbræðslna, fiskþurrkana og stórnotenda þann 1. desember. Kom sú skerðing til vegna mikils álags og viðhalds. „Eftirspurn eftir raforku hefur aukist hratt undanfarna mánuði. Skerðingarákvæði samninga eru hugsuð til að nota við slíkar aðstæður, það er þegar eftirspurn er meiri en framboð. Fiskimjölsframleiðendur hafa til dæmis notast bæði við olíu og rafmagn í framleiðslu sinni, en samningar undanfarinna ára miðað að því að þeir hafi sem mestan aðgang að raforku. Olían er þó enn nauðsynlegur varaaflgjafi,“ sagði í tilkynningu á vef Landsvirkjunar í síðustu viku. Flutningskerfið takmarki afhendingargetu Að sögn Landsvirkjunar hefur fyrirtækið nú fullnýtt getu flutningskerfisins til að flytja orku frá Norðausturlandi til álagspunkta á Suðvesturlandi og ræður flutningskerfið ekki við að flytja alla þá orku sem hægt væri að færa milli landshluta. „Hinn 23. ágúst sl. fylltist Hálslón á Kárahnjúkum og þremur dögum síðar nam afl yfirfallsins um 2000 MW. Á 10 dögum rann því framhjá orka, sem samsvarar heilsárnotkun allra bræðslna á landinu, þegar vertíð er góð. Með sterkara flutningskerfi hefði mátt nýta stóran hluta þeirrar orku sem rann framhjá. Áætla má að takmarkanir í flutningskerfinu dragi úr vinnslugetu kerfisins sem nemur allt að 500 GWh. Að loknu sumri með jafn ójafnri dreifingu góðviðrisdaga og raun bar vitni koma áhrifin fram með sérstaklega sterkum hætti,“ segir í tilkynningu sem Landsvirkjun sendi frá sér í dag. Fréttin hefur verið uppfærð.
Landsvirkjun Orkumál Vatnsaflsvirkjanir Sjávarútvegur Áliðnaður Tengdar fréttir Landsvirkjun skerti orku til fiskimjölsbræðslna Landsvirkjun greip til þess ráðs í gær að skerða raforku til fiskimjölsbræðslna, fiskþurrkana og stórnotenda. Tekið er fram að þetta hafi einungis verið tímabundin skerðing vegna mikils álags og viðhalds þann daginn en mjölframleiðendum bent á að olía sé enn nauðsynlegur varaaflsgjafi. 2. desember 2021 10:20 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Einar hættir með Grillbúðina Viðskipti innlent Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hætta skerðingum til stórnotenda Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Fleiri fréttir Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Sjá meira
Landsvirkjun skerti orku til fiskimjölsbræðslna Landsvirkjun greip til þess ráðs í gær að skerða raforku til fiskimjölsbræðslna, fiskþurrkana og stórnotenda. Tekið er fram að þetta hafi einungis verið tímabundin skerðing vegna mikils álags og viðhalds þann daginn en mjölframleiðendum bent á að olía sé enn nauðsynlegur varaaflsgjafi. 2. desember 2021 10:20