Segir Sveindísi einn besta skyndisóknarleikmann heims Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júní 2023 08:30 Sveindís Jane Jónsdóttir þykir einn hættulegasti leikmaður Wolfsburg. getty/Boris Streubel Þjálfari Arsenal segir Sveindísi Jane Jónsdóttur vera einn besta skyndisóknarleikmann heims.
Sveindís og stöllur hennar í Wolfsburg mæta Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardaginn. Í tilefni af því fékk the Guardian Jonas Eidevall, þjálfara Arsenal, til að rýna í liðin sem mætast í Eindhoven. Wolfsburg sló einmitt Arsenal úr leik í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Eidevall segir að á meðan Barcelona vilji halda boltanum og byggja upp sóknir sínar á þaulæfðan hátt treysti Wolfsburg á skyndisóknir. Og þar sé Sveindís í stóru hlutverki ásamt Ewu Pajor. Eidevall gengur meira að segja svo langt að segja að Sveindís sé einn besti skyndisóknarleikmaður í heimi. Hann segir jafnframt að lykileinvígi leiksins gæti verið milli Sveindísar og enska bakvarðarins Lucy Bronze hjá Barcelona. Á síðasta tímabili vann Barcelona Wolfsburg í undanúrslitum Meistaradeildarinnar, 5-3 samanlagt. Eidevall segir að Sveindís hafi þurft að verjast mikið í því einvígi sem hafi hamlað henni og þýska liðinu. „Sveindís er margt en frábær varnarmaður er hún ekki. Á hinn bóginn er hún einn besti skyndisóknarleikmaður í heimi,“ skrifar Eidevall. Sveindís á ferðinni gegn Arsenal.getty/Clive Rose Hann segir að í vetur hafi Sveindís spilað meira á vinstri kantinum en þeim hægri. Hún spilaði meðal annars þar gegn Bayern München í þýsku bikarkeppninni í síðasta mánuði og átti þátt í þremur mörkum í stórsigri Wolfsburg, 5-0. Í öllum tilfellum var hún framarlega gegn hægri bakverði Bayern, fékk boltann frá miðjunni og bjó til mark með hraða sínum. Eidevall segir áhugavert að sjá hvernig Barcelona ætlar að spila gegn Sveindísi, hvort hægri bakvörðurinn verði framar- eða aftarlega gegn henni. Hann segir að í undanúrslitunum hafi hann reynt að láta hana verjast sem mest og draga þannig úr skyndisóknarhættunni sem henni fylgir. Í fyrri leiknum gegn Arsenal skoraði Sveindís eitt mark og lagði upp annað í 2-2 jafntefli. Wolfsburg vann svo seinni leikinn, 2-3. Pauline Bremer skoraði sigurmark þýska liðsins þegar ein mínútu var eftir af framlengingunni. Lesa má pistil Jonasar Eidevall um úrslitaleik Meistaradeildarinnar með því að smella hér.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Golf Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ Enski boltinn „Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum“ Sport Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Körfubolti Fleiri fréttir Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Spánarmeistarar Real skoruðu fimm „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ Sjá meira