Sara byrjuð að æfa á ný

Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Juventus í haust.
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Juventus í haust. Ljósmynd/@JuventusFCWomen

Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir hefur jafnað sig á meiðslum sem hún hefur verið að glíma við að undanförnu og er byrjuð að æfa með liði sínu Juventus að nýju.

Sara Björk hefur ekkert leikið með Juventus í tæpa tvo mánuði, eða síðan hún fór meidd af velli í fyrri hálfleik í 4:2-sigri liðsins á toppliði Roma þann 11. desember síðastliðinn.

Nú styttist hins vegar í endurkomu hennar á keppnisvöllinn þar sem Sara Björk hefur hafið æfingar af fullum krafti með liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert