Beit sig til blóðs við tökur á einu þekktasta atriði Fóstbræðra Vésteinn Örn Pétursson skrifar 11. október 2021 22:48 Egill þurfti að setja myndavélina á upptöku og hreinlega hlaupa út úr herberginu þar sem Fóstbræðrasketsinn frægi var tekinn, og halda fyrir munninn. Svo fyndið þótti honum atriðið. Kvikmyndatökumaðurinn Egill Aðalsteinsson hefur starfað hjá Stöð 2 síðan stöðin fór í loftið árið 1986. Hann rifjaði upp eftirminnileg augnablik á ferlinum í afmælisþætti Stöðvar 2 á laugardaginn með Kristjáni Má Unnarssyni fréttamanni.
Aðspurður hvað stæði upp úr á svo löngum ferli nefndi Egill meðal annars eldgosaferðir með Kristjáni Má, þegar gaus í Holuhrauni og jánkar því að mögulega hafi hann jafnvel verið örlítið hræddur í þeim ferðum. „Og svo náttúrulega Grímsvatnagosið. Svo þegar ég fór með Sunnu Karen [Sigurþórsdóttur] á Seyðisfjörð, í skriðurnar. Þegar skriðan kom og ég er þarna bara á sokkaleistunum og skyrtunni í hamfararigningu, að mynda á síma skriðuna koma niður. Það var rosalegt,“ sagði Egill. Egill hefur þó ekki eingöngu myndað fyrir fréttastofuna, heldur komið að gerð fjölmargra þátta á Stöð 2. Hann segir það mikið ævintýri að hafa tekið upp þættina Hvar er best að búa? með Lóu Pind Aldísardóttur, sem og Leitina að upprunanum með Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur. Egill tók þá upp fyrstu þrjár þáttaraðirnar af hinum goðsagnakenndu grínþáttum Fóstbræðrum, og lýsir því meðal annars hvernig hann eyðilagði tvær tökur af einum þekktasta Fósbræðrasketsinum, sem margir þekkja í tengslum við frasann „Þú ert drekinn.“ Honum hafi einfaldlega þótt atriðið svo fyndið að hann réði ekki við sig „Ég var búinn að bíta mig í tunguna, til blóðs og allt. Mig minnir að þetta hafi verið á endanum þannig að ég þurfti að setja myndavélina á upptöku, fara út fyrir og bara, þú veist,“ sagði Egill áður en hann setti höndina fyrir munninn á sér.
Grín og gaman Mest lesið Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun Laufey skein skært á Met Gala Tíska og hönnun Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Lífið Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Lífið Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Lífið Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Lífið Fleiri fréttir Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi „Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Sonurinn skírður Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Sjá meira