Metoo umræða á þingi: Réttarkerfið brugðist og sönnunarbyrðin erfið Sunna Sæmundsdóttir skrifar 11. maí 2021 14:19 Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona VG, Olga Margrét Cilia, þingkona Pírata og Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins. vísir/samsett Þingmenn fordæmdu nauðgunarmenningu og sögðu réttarkerfið hafa brugðist þolendum kynferðisofbeldis í umræðum um störf þingsins í dag.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona Vinstri Grænna, hóf ræðu sína á að þakka öllum þeim sem stigið hafa fram með reynslusögur um kynbundið ofbeldi. „Það er ekki auðvelt að vinda ofan af nauðgunarmenningu. Við erum í annarri bylgju metoo.“ Hún vísaði til umræðu um hvort réttlætanlegt væri að birta á samfélagsmiðlum svo miklar upplýsingar að meintir gerendur væru nánast persónugreindir án þess að mál hafi ratað inn á borð lögreglu. „En á sama tíma fáum við upplýsingar um að Landsréttur mildi dóma í 40% kynferðisbrotamála sem fara fyrir dóminn. Til samanburðar eru 25% dóma í ofbeldis- og fíkniefnabrotum mildaðar. Skyldi engan undra að þolendur séu tregir til að leita réttar síns ef þetta eru kveðjurnar frá dómstólum landsins,“ sagði Bjarkey og bætti við að enn væri langt í land þrátt fyrir að fyrir nýlegar breytingar á hegningarlögum. „Þó að það séu þrjú ár síðan við hér í þessum sal, breyttum almennum hegningarlögum á þá vegu að samþykki væri sett í forgrunn í kynferðisbrotamálum, þá er sönnunarbyrðinni í þessum málum enn þá allt of há. Í ofanálag eru þolendur sem stíga fram sakaðir um að sverta mannorð gerenda sinna. Það er umræða sem við þurfum að uppræta strax. Það eru gerendur sem sverta sitt eigin mannorð þegar þeir beita ofbeldinu.“ Rætt var um metoo-bylgjuna í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag.mynd/vísir Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, spurði jafnframt hvort refsivörslukerfið væri í stakk búið til þess að takast á við verkefnið. „Það er hryllilegt að vita til þess að okkar annars góða samfélag sé með þennan ljóta blett sem kynferðislegt ofbeldi og áreiti er. Við þurfum að hlusta á þessar sögur. Við þurfum að læra og við þurfum einfaldlega að gera betur. Þrátt fyrir átaki í að efla rannsóknir kynferðisbrota og hraða afgreiðslu þeirra erum við samt ekki að gera nógu vel og við þurfum að gera betur,“ sagði Bryndís og bætti við að einnng þurfi að huga að því að veita gerendum aðstoð til þess að hætta að beita ofbeldi. Olga Margrét Cilia, þingmaður Pírata, sagði réttarkerfið hafa brugðist. „Við kærum ekki því að réttarkerfið segir okkur að þegja. Við kærum ekki því að ef við dirfumst að gera það er okkur úthúðað í samfélaginu. Ef við segjum frá erum við útskúfaðar frá fjölskyldum og vinum,“ sagði Olga og varpaði ábyrgðinni yfir á gerendur. „Spurningin ætti að vera: Af hverju hætta þessir góðu gerendur, ekki bara áreita, nauðga, lítillækka og valda óafturkallanlegum skaða á lífi kvenna og kynsegin?“ „Skömmin er ekki þolenda. Skömmin er gerenda og réttarkerfis sem hefur gjörsamlega brugðist þolendum kynferðisofbeldis og neitar að taka ábyrgð á þeim varanlegum skaða sem það hefur valdið á kynslóðum, kvenna og kynsegin sem treysta ekki kerfinu til að ná fram réttlæti,“ sagði Olga.
MeToo Alþingi Kynferðisofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Sjá meira