Stjórnvöld taka á móti 35 til 70 manns til viðbótar frá Afganistan Eiður Þór Árnason skrifar 14. janúar 2022 12:58 Afganar bíða í röð í Kabúl eftir fjárúthlutun á vegum Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Ap/Bram Janssen Ríkisstjórnin hefur samþykkt að taka á móti 35 til 70 manns frá Afganistan til viðbótar við þann hóp sem tekið var á móti í haust. Ákvörðunin var tekin í ljósi þeirrar ólgu og upplausnar sem ríkir í landinu í kjölfar valdatöku talibana.
Í ágúst samþykkti ríkisstjórnin að aðstoða og taka á móti tilgreindum hópi Afgana með tengsl við Ísland vegna valdatökunnar. Í kjölfarið komu 78 einstaklingar frá Afganistan í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Lífsskilyrði hafa farið versnandi í landinu undanfarna mánuði og telur ríkisstjórnin brýnt að bregðast frekar við stöðunni. Neyðarástand ríkir í Afganistan vegna þurrka og matarskorts. Í desember vöruðu Sameinuðu þjóðirnar við því að grípi alþjóðasamfélagið ekki inn í muni allt að milljón afgönsk börn deyja úr hungri áður en veturinn líður undir lok. Erfitt að áætla endanlegan fjölda Flóttamannanefnd hefur verið falið að útfæra nýja tillögu ríkisstjórnarinnar. Horft verður sérstaklega til einstæðra kvenna í viðkvæmri stöðu sem hafa náin tengsl við Ísland og barna þeirra. Að sögn stjórnvalda er erfitt að meta nákvæman fjölda sem tekið verður á móti þar sem hann fer eftir fjölskyldusamsetningu. Upphaflega var gert ráð fyrir að fyrri hópurinn yrði um 90 til 120 manns en 78 einstaklingar hafa komið til landsins frá Afganistan í haust líkt og fyrr segir. Fimm manna fjölskylda þáði ekki boð um að flytjast til Íslands og fjörutíu einstaklingar hafa fengið að dveljast í öðrum ríkjum.
Flóttafólk á Íslandi Afganistan Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Talíbanar banna langferðir kvenna Talíbanar hafa bannað afgönskum konum, sem ætla að ferðast langar vegalengdir, að ferðast einar. Rútu- og lestarstjórar mega því ekki hleypa konum inn nema þær séu í fylgd karlkyns ættingja sinna. 27. desember 2021 14:31 Vara við því að milljón afgönsk börn deyi úr hungri í vetur Neyðarástand ríkir í Afganistan vegna þurrka og matarskorts. Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við því að grípi alþjóðasamfélagið ekki inn í muni allt að milljón afgönsk börn deyja úr hungri áður en veturinn líður undir lok, fleiri landsmenn en létust í tuttugu ára löngu stríði. 20. desember 2021 08:36 Taka við allt að 120 flóttamönnum frá Afganistan Íslensk stjórnvöld áætla að taka á móti allt að 120 flóttamönnum frá Afganistan en heildarfjöldi liggur ekki endanlega fyrir. Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögur flóttamannanefndar vegna þess ástands sem skapast hefur í Afganistan í kjölfar valdatöku Talibana. 24. ágúst 2021 11:22 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Innlent Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Erlent Fleiri fréttir Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Sjá meira
Talíbanar banna langferðir kvenna Talíbanar hafa bannað afgönskum konum, sem ætla að ferðast langar vegalengdir, að ferðast einar. Rútu- og lestarstjórar mega því ekki hleypa konum inn nema þær séu í fylgd karlkyns ættingja sinna. 27. desember 2021 14:31
Vara við því að milljón afgönsk börn deyi úr hungri í vetur Neyðarástand ríkir í Afganistan vegna þurrka og matarskorts. Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við því að grípi alþjóðasamfélagið ekki inn í muni allt að milljón afgönsk börn deyja úr hungri áður en veturinn líður undir lok, fleiri landsmenn en létust í tuttugu ára löngu stríði. 20. desember 2021 08:36
Taka við allt að 120 flóttamönnum frá Afganistan Íslensk stjórnvöld áætla að taka á móti allt að 120 flóttamönnum frá Afganistan en heildarfjöldi liggur ekki endanlega fyrir. Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögur flóttamannanefndar vegna þess ástands sem skapast hefur í Afganistan í kjölfar valdatöku Talibana. 24. ágúst 2021 11:22