Tíundi heimasigur meistaranna í röð

Stephen Curry og Andrew Wiggins voru atkvæðamiklir í nótt.
Stephen Curry og Andrew Wiggins voru atkvæðamiklir í nótt. AFP/Getty Images/Ezra Shaw

Andrew Wiggins og Steph Curry voru atkvæðamiklir í tíunda heimasigri bandarísku NBA-meistaranna í körfubolta Golden State Warriors í röð gegn Houston Rockets í nótt. 

Leiknum lauk með 120:101 sigri Golden State. Wiggins var stigahæstur í liði meistaranna með 36 stig en hann tók einnig fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Curry var einnig atkvæðamikill með 30 stig, þrjú fráköst og tíu stoðsendingar. 

Milwaukee Bucks unnu sterkan 105:96 útisigur á Charlotte Hornets án Giannis Antetokounmpo í nótt. 

Bobby Portis steig upp og var atkvæðamestur í liði Milwaukee. Hann setti 20 stig, tók átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar. 

Öll úrslit næturinnar:
Utah Jazz 111:116 Portland Trail Blazers
Minnesota Timberwolves 128:135 Oklahoma City Thunder 
Toronto Raptors 121:108 Orlando Magic
LA Clippers 96:123 Sacramento Kings 
Golden State Warriors 120:101 Houston Rockets
Charlotte Hornets 96:105 Milwaukee Bucks

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert