Vonandi ekki þjóðarsátt um að Seðlabankinn bregðist einn við Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. maí 2023 10:56 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir nauðsynlegt að ríkið og vinnumarkaðurinn stígi upp í baráttunni við verðbólgu og verðbólguvæntingar. Vísir/Vilhelm Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir gríðarlega mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins standi undir sinni ábyrgð og taki þátt í því að bregðast við verðbólgu og verðbólguvæntingum með Seðlabanka Íslands.
Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi peningastefnunefndar Seðlabankans í morgun. Þar sátu fyrir svörum Ásgeir Jónsson auk Rannveigar Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóra peningastefnu og staðgengill formanns og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 1,25 prósentustig, í 8,75 prósent. Um var að ræða þrettándu hækkun stýrivaxta Seðlabankans í röð. Þeir hafa ekki verið hærri síðan í febrúar 2010. Telur Seðlabankann einan á báti Á fundinum var Ásgeir meðal annars spurður hvort hann teldi að hið opinbera taki nægilega ábyrgð á hækkandi verðbólgu og hvort að Seðlabankinn væri einn á báti í þeirri baráttu. „Svarið er já,“ sagði Ásgeir þá en bætti því við að í núverandi ríkisfjármálaætlun séu stigin fyrstu skref í átt að því að hið opinbera taki ábyrgð á stöðunni. Þá segir hann að vinnumarkaðurinn þurfi einnig að stíga upp. „Það er stundum orðað þannig að ef það er vandi að þá þurfi fyrst að viðurkenna vandann og síðan taka ábyrgð. Það er mjög mikilvægt að vinnumarkaðurinn viðurkenni ábyrgð sína og að hann átti sig á því að það að ætla að hækka nafnlaun hjálpar ekki endilega fólki, heldur eykur verðbólguna sem þýðir að þá þarf að hækka stýrivexti.“ Rannveig rifjaði upp að byrjað hefði verið að tala um þjóðarsátt í fyrra gegn verðbólgunni. „Núna eftir á er ljóst að sú þjóðarsátt var þá greinilega bara um það að Seðlabankinn héldi áfram að hækka vexti. Kjarasamningar voru dýrir og framkvæmd þeirra mjög dýr og fjármálaætlun hefði getað verið mun metnaðarfyllri,“ segir Rannveig. „Þannig að vonandi verður umræða um þjóðarsátt núna ekki á þeim nótum að Seðlabankinn haldi áfram einn að hækka vexti heldur komi aðrir aðilar inn í þá þjóðarsátt.“ Áhrifamáttur peningastefnunnar mikill óháð verðtryggingu Þá vék Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, á fundinum í kynningu sinni á ákvörðun peningastefnunefndar að umræðunni um að fjölgun heimila með verðtryggð lán þýði að peningastefna Seðlabankans hafi ekki lengur áhrif. „Ólíkt því sem haldið er fram í almennri umræðu skiptir þetta engu máli. Áhrifamáttur peningastefnunnar er alveg eins hvort sem hluti verðtryggðra lána er mikill eða lítill,“ segir Þórarinn. „Fullyrðingar um að peningastefnan ýti fólki í verðtryggð lán er rétt. Fullyrðingar um að hún hafi áhrif á miðlunarferli peningastefnunnar er röng.“
Seðlabankinn Efnahagsmál Íslenska krónan Fjármál heimilisins Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Viðskipti innlent Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Sjá meira