„Það búa tvær þjóðir í landinu og það er risa gjá á milli þeirra“ Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 7. júní 2021 21:55 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir núverandi ástand einkennast af spillingu og græðgi. VÍSIR/VILHELM Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir með ólíkindum að hlusta á þær ræður sem fluttar hafa verið á eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld. Hún sakar þingmenn um að láta sem ekkert sé þegar kemur að ástandinu í samfélaginu. „
Það búa tvær þjóðir í landinu og það er risa gjá á milli þeirra. Á öðrum bakkanum standa þau sem allt eiga. Græðgi, auðmagn og sjálftaka hefur skapað þeirra tilveru og þeirra líf. Á hinum bakkanum eru svo hinir sem ekkert eiga og þurfa að biðja um ölmusuna.“ Hún segir Flokk fólksins vilja byggja brú yfir þá gjá. Hún segir að núverandi ástand í samfélaginu sé litað af sérhagsmunum og græðgisvæðingu. „Spillingin er svo augljós að hún er áþreifanleg,“ segir Inga og ítrekar að Flokkur fólksins sé málsvari þeirra sem þöggunin ríkir um. Mannauðurinn sem fær aldrei að blómstra Þá gagnrýnir Inga hvernig menntun barnanna okkar sé háttað. Hún segir börnin vera mannauð sem aldrei fær að blómstra og nefnir þar hátt hlutfall drengja sem útskrifast með lélegan lesskilning eftir tíu ára skólagöngu. Hún furðar sig á því að námsgögnum sé hrúgað á börn, jafnvel á erlendum tungumálum, þegar börnin eru jafnvel ólæs á sínu eigin máli. „Svo er fólk furðulostið yfir vaxandi sálfræðilegum erfiðleikum hjá unga fólkinu okkar.“ Inga segist ekki hissa á því að ungu fólki líði illa, heldur sé hún hissa á því að hlutirnir skuli ekki vera lagaðir. „Ég er hissa á því hvers lags þöggun og hvers lags feluleikur er um hluti sem við eigum löngu að vera búin að laga.“ Loks minnist hún orða Bjarna Benediktssonar frá árinu 2017, þar sem hann sagði að það að láta fátækt fólk bíða eftir réttlætinu, væri það sama og að neita því um réttlæti. Í ljósi þeirra orða telur hún merkilegt að biðraðir í hjálparstofnanir þar sem fátækt fólk biður um mat séu að lengjast. „Það er skömm af þessu,“ segir Inga.
Alþingi Flokkur fólksins Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Sjá meira