Innanríkisráðherra Líbíu sýnt banatilræði

Líbískir hermenn í Tripólí.
Líbískir hermenn í Tripólí. AFP

Fathi Bashagha, innanríkisráðherra Líbíu, var sýnt banatilræði rétt utan við Tripólí, höfuborg landsins, í dag.

Skotið var á bílalest Bashagha úr brynvörðum bíl á miðri hraðbraut, hefur AFP eftir einum starfsmanna Bashagha, sem segir einnig að í lagi sé með ráðherrann.

Lögreglumenn úr bílalest Bashagha hófu þá að skjóta á brynvarða bílinn til baka. Þrír eru grunaðir um verknaðinn, tveir voru handteknir á vettvangi en einn var fluttur á sjúkrahús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert