Launamunurinn geti vel skýrst af hálaunastörfum Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 23. nóvember 2021 12:07 Sonja Ýr og Aðalsteinn Baldursson eru ekki sammála um réttar áherslur í launaþróun á Íslandi. Enda í umboði fyrir sitthvorn hópinn. vísir/vilhelm Formaður BSRB harmar gagnrýni innan úr röðum Starfsgreinasambandsins og segir ekki hægt að þá staðreynd í efa að opinberir starfsmenn séu lægra launaðir að meðaltali. Hún útilokar þó ekki að þetta eigi aðallega við hálaunastörf en þau þurfi þá að hækka hjá hinu opinbera.
BSRB hefur lengi talað fyrir því að laun verði jöfnuð milli opinbers og almenns vinnumarkaðar. Sú krafa á rætur sínar að rekja til þess þegar iðgjöld á almennum vinnumarkaði breyttust fyrir nokkrum árum en opinberir starfsmenn litu á það sem skerðingu á sínum réttindum. „Og í staðinn fengum við þetta loforð um að það yrði farið í þá vinnu að jafna launin milli markaða. Af því að það hefur gjarnan líka verið litið svo á að launin séu lægri á opinberum vinnumarkaði,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Starfshópur hafi verið skipaður og hann farið í vinnu við að greina launamuninn. Samkvæmt útreikningum BSRB sem byggjast á tölum frá Hagstofunni sé munurinn 17 prósent að meðaltali, opinberum starfsmönnum í óhag. Áhersla á að hækka hæstu launin Þessi málflutningur BSRB vakti hörð viðbrögð eins stjórnarmanns Starfsgreinasambandsins, Aðalsteins Árna Baldurssonar, í gær. Hann kallaði þetta áróður hjá BSRB sem gæti skaðað láglaunafólk á almennum vinnumarkaði. Launamunurinn ætti aðeins við um hálaunastörf en þegar litið væri til láglaunastarfa, sem flestir hans félagsmenn sinna, væru opinberir starfsmenn mun betur settir. „Það hefur náttúrulega komið mjög skýrt fram að þegar það er verið að vísa til 17 prósenta þá sé það meðaltal og ég held að það liggi bara í hlutarins eðli að það eigi þá ekki við alla hópana heldur er bara misjafnt á milli hópa,“ segir Sonja. Það geti því vel verið rétt hjá Aðalsteini að jöfnun launa milli markaða muni aðallega snúa að þeim hæst launuðu hjá hinu opinbera. „Sko hlutverk þessa starfshóps er að leiðrétta þann launamun sem er til staðar og er opinberum starfsmönnum í óhag,“ segir Sonja. Það má skilja á henni að ef það komi út úr greiningarvinnu starfshóps BSRB að munurinn sé í hæst launuðu störfunum verði samt sem áður að leiðrétta þann mun. Hvað varði lægst launuðu hópana á almennum vinnumarkaði verði Starfsgreinasambandið að eiga kröfur sínar um launahækkanir við Samtök atvinnulífsins.
Kjaramál Vinnumarkaður Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Sveitarstjórnarmál Norðurþing Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Sjá meira