Segir leitt að missa 4×4 og hafnar ásökunum um harðlínustefnu Atli Ísleifsson skrifar 15. janúar 2021 14:24 Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir að á síðustu misserum hafi Bændasamtökin og Skógræktarfélag Íslands sagt sig úr Landvernd. Önnur samtök hafi hins vegar bæst í hópinn. Getty/Mayall/ullstein/Vísir/Egill „Okkur finnst mjög leiðinlegt að missa 4×4. Það eru mjög mörg mál sem við eigum sameiginleg og hagsmunir sem við eigum sameiginlega.“ Þetta segir Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, um ákvörðun Ferðaklúbbsins 4×4 að segja sig úr Landvernd. Hún hafnar ásökunum klubbsins um að Landvernd hafi rekið stefnu undanfarin ár sem hafi verið öfgakennd og markast af harðlínu.
Auður segir málið leiðinlegt og að Landvernd og Ferðaklúbburinn 4×4 hafi lengi unnið að mörgum málum saman, til dæmis málefnum sem varða Hálendisþjóðgarð. Líkt og sagði í frétt Vísis í morgun hefur Ferðaklúbburinn 4×4 ákveðið að hætta öllum stuðningi við Landvernd. Þá munu allir fulltrúar 4×4 segja sig úr öllum nefndum á vegum samtakanna. Hún segist að sjálfsögðu hafna því að Landvernd reki einhverja harðlínustefnu. „Við viljum bara að farið sé að náttúruverndarlögum. Náttúruvernd er skilgreind í náttúruverndarlögum og það er stefnan sem við vinnum eftir. Við höfum ítrekað reynt að funda með 4x4, en það hefur verið erfitt að fá fund með þeim síðustu tvö ár eða svo. En okkur finnst þetta mjög leiðinlegt,“ segir Auður. Fleiri sagt sig úr, önnur komið inn Auður segir fleiri dæmi um að samtök hafi sagt sig úr Landvernd á síðustu misserum – Skógræktarfélag Íslands og Bændasamtökin. Önnur samtök hafi hins vegar bæst í hópinn á þeim tíma sem hún hafi gegnt stöðu framkvæmdastjóra – Vistfræðifélag Íslands, SEEDS Iceland og SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi. Vinna áfram saman að hagsmunamálum Auður segir að Skógræktarfélag Íslands hafi sagt sig úr Landvernd fyrir um ári og þá borið fyrir sig fjárhagsástæður. „Það var mjög þröngt um reksturinn hjá þeim og höfðu ekki tök að vera með okkur lengur. Það er náttúrulega mjög leiðinlegt en við vinnum áfram með Skógræktarfélaginu að ýmsum verkefnum, meðal annars Kolviði. Við erum svo að vinna að öðrum málefnum núna sem eru sameiginleg hagsmunamál Landverndar og Skógræktarfélags Íslands.“ Hún segir að Skógræktin og Landvernd eigi í góðu samstarfi og samtali, en að það sé þó ekkert leyndarmál að þar séu líka málefni sem ekki sé samstaða um. „Við vonumst að sjálfsögðu til að við getum áfram unnið að sameiginlegum hagsmunamálum með 4x4, mál sem við erum sammála um, alveg eins og hefur átt við um Skógræktarfélagið.“ Sex þúsund einstaklingar félagar Landvernd voru einu sinn eingöngu regnhlífasamtök, en Auður segir að frá 2005 hafi samtökin verið að færa sig í að vera samtök með bæði samtök og einstaklinga sem félaga. Nú séu um fjörutíu samtök aðilar að Landvernd og um sex þúsund einstaklingar.
Félagasamtök Umhverfismál Bílar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Sjá meira