Leipzig í úrslit eftir framlengingu

Emil Forsberg skaut RB Leipzig í úrslitaleikinn.
Emil Forsberg skaut RB Leipzig í úrslitaleikinn. AFP

Emil Forsberg var hetja RB Leipzig þegar liðið vann 2:1-sigur gegn Werder Bremen í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu á Weser-vellinum í Bremen í kvöld.

Staðan að loknum venjulegum leiktíma var markalaus en Hee-Chan Hwang kom Leipzig yfir í upphafi framlengingarinnar.

Leonardo Bittencourt jafnaði metin fyrir Werder Breman í uppbótartíma fyrri hálfleiks framlengingarinnar og virtist allt stefna í vítakeppni þegar Forsberg skoraði sigurmark leiksins.

Borussia Dortmund tekur á móti B-deildarliði Holstein Kiel, sem sló meðal annars út Evrópumeistara Bayern München í bikarkeppninni, í hinu undanúrslitaeinvíginu á morgun.

Úrslitaleikur þýsku bikarkeppninnar fer svo fram hinn 13. maí á Ólympíuleikvangingum í Berlín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert