Innlent

Samningafundi FFÍ og Icelandair lokið

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Kjarasamningur FFÍ og Icelandair var felldur á miðvikudaginn eftir langar og strangar samningaviðræður.
Kjarasamningur FFÍ og Icelandair var felldur á miðvikudaginn eftir langar og strangar samningaviðræður. Vísir/vilhelm

Samningafundi samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair sem staðið hefur yfir í dag hjá Ríkissáttasemjara í Karphúsinu er lokið. Annar fundur hefur verið boðaður á þriðjudaginn klukkan 14.

Fundur samninganefndanna hófst klukkan þrjú í dag til að fara á ný yfir stöðuna í kjaradeilum FFÍ og Icelandair en flugfreyjufélagið felldi kjarasamning á miðvikudag sem hafði verið undirritaður 25. júní eftir langar og strangar viðræður.

Samningaviðræður FFÍ og SA, fyrir hönd Icelandair, voru sagðar mjög flóknar enda kom hagræðingaferli Icelandair inn í samningsgerðina, en samningar við stéttarfélög eru meðal lykilatriða í fjárhagslegri endurskipulagningu flugfélagsins sem nú stendur yfir. Ríkissáttasemjari sagði í samtali við fréttastofu í vikunni að farið yrði yfir málið á ný, það greint og reynt að finna nýjan flöt. Hann sagðist þess fullviss að allir myndu gera sitt besta til að ná saman.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×