Stjörnumenn þurfa að laga vandræða leikhlutann sinn ætli þeir í oddaleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2021 14:31 Callum Reese Lawson skoraði 9 stig í þriðja leikhluta í síðasta leik og hér er hann að losa sig frá Austin James Brodeur í síðasta leik liðanna í Garðabænum. Vísir/Bára Stjörnumenn berjast fyrir lífi sínu í úrslitakeppni Domino's deild karla í körfubolta í kvöld en Þórsarar geta þá sent Garðbæinga í sumarfrí og tryggt sér sæti í lokaúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. Þór vann síðasta leik liðanna mjög sannfærandi með 23 stiga mun þar sem Þorlákshafnarmenn hittu úr 60% þriggja stiga skota sinna og settu alls 115 stig á töfluna. Þetta var fjórði sigur Þórsara í fimm leikjum á móti Stjörnunni á tímabilinu. Eina tapið kom í leik eitt í þessu undanúrslitaeinvígi en Garðbæingar sóttu þá sigur á útivöll. Þórsarar hafa svarað með tveimur sigrum í röð og geta nú klárað einvígið í kvöld. Það er auðvitað ýmislegt sem Stjörnuliðið þarf að laga eftir skellinn í síðasta leik en það er þó sérstaklega einn leikhluti sem hefur farið afar illa með liðið á móti Þór. Stjarnan var í þriðja sæti yfir besta nettó í þriðja leikhluta í deildinni í vetur og vann hann með samtals 18 stigum í einvíginu á móti Grindavík sem var það besta í átta liða úrslitunum. Leikirnir á móti Þór eru allt önnur saga. Yfirburðir Þórsliðsins í einum leikhluta í þessum fimm leikjum liðanna eru sláandi. Hálfleiksræður Arnar Guðjónssonar hafa nefnilega ekki borið mikinn árangur en á sama tíma hefur Lárus Jónsson, þjálfari Þórs, hins vegar náð að kveikja í sínum mönnum og breyta rétt. Þórsarar hafa unnið þriðja leikhlutann með samtals 38 stigum í þessum fimm leikjum eða með 7,6 stigum að meðaltali. Þeir eru að skora 25,6 stig að meðaltali á móti 18,0 stigum frá Stjörnunni. Þórsarar hafa unnið þriðja leikhluta í öllum leikjunum fimm en eini tapleikurinn sker sig þó aðeins úr. Eini sigurleikur Stjörnunnar á móti Þór kom í leik sem þeir töpuðu þriðja leikhlutanum bara með einu stigi. Þór hefur unnið þriðja leikhlutann í hinum fjórum leikjunum með sex stigum eða meira. Í raun má segja að Þórsaliðið hafi hlaupið yfir Stjörnumenn í seinni hálfleik í vetur. Stjarnan hefur unnið fyrri hálfleik leikja liðanna með samanlagt 11 stigum en Þórsarar hafa aftur á móti unnið seinni hálfleikina með 49 stigum. Auðvitað á þriðji leikhlutinn stærstan hlut í viðsnúningi Þórsliðsins en Stjörnumenn hafa hreinlega átt fá svör við tempó Þórsliðsins eftir hlé. Leikur Stjörnunnar og Þórs í kvöld hefst klukkan 20.15 og er hann sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun hjá Domino's Körfuboltakvöldi hefst klukkan 19.45 og strax á eftir leiknum verður hann gerður upp í Domino's Körfuboltakvöldi á sömu stöð. Nettó eftir leikhlutum í fimm leikjum Þórs og Stjörnunnar i vetur: 1. leikhluti: Stjarnan +3 2. leikhluti: Stjarnan +8 3. leikhluti: Þór Þorl. +38 4. leikhluti: Þór Þorl. +11 - Þórsarar eru 38 stig í plús í heildarnettó sem er einmitt forskot liðsins í þriðja leikhluta. Þriðji leikhluti í fimm leikjum Þórs og Stjörnunnar i vetur: Deildarleikur eitt í Garðabæ: Þór Þorl. +8 Deildarleikur tvö í Þorlákshöfn: Þór Þorl. +15 Úrslitakeppni, leikur eitt í Þorlákshöfn: Þór Þorl. +1 Úrslitakeppni, leikur tvö í Garðabæ: Þór Þorl. +6 Úrslitakeppni, leikur þrjú í Þorlákshöfn: Þór Þorl. +8 Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Dominos-deild karla Stjarnan Þór Þorlákshöfn Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri Sjá meira
Þór vann síðasta leik liðanna mjög sannfærandi með 23 stiga mun þar sem Þorlákshafnarmenn hittu úr 60% þriggja stiga skota sinna og settu alls 115 stig á töfluna. Þetta var fjórði sigur Þórsara í fimm leikjum á móti Stjörnunni á tímabilinu. Eina tapið kom í leik eitt í þessu undanúrslitaeinvígi en Garðbæingar sóttu þá sigur á útivöll. Þórsarar hafa svarað með tveimur sigrum í röð og geta nú klárað einvígið í kvöld. Það er auðvitað ýmislegt sem Stjörnuliðið þarf að laga eftir skellinn í síðasta leik en það er þó sérstaklega einn leikhluti sem hefur farið afar illa með liðið á móti Þór. Stjarnan var í þriðja sæti yfir besta nettó í þriðja leikhluta í deildinni í vetur og vann hann með samtals 18 stigum í einvíginu á móti Grindavík sem var það besta í átta liða úrslitunum. Leikirnir á móti Þór eru allt önnur saga. Yfirburðir Þórsliðsins í einum leikhluta í þessum fimm leikjum liðanna eru sláandi. Hálfleiksræður Arnar Guðjónssonar hafa nefnilega ekki borið mikinn árangur en á sama tíma hefur Lárus Jónsson, þjálfari Þórs, hins vegar náð að kveikja í sínum mönnum og breyta rétt. Þórsarar hafa unnið þriðja leikhlutann með samtals 38 stigum í þessum fimm leikjum eða með 7,6 stigum að meðaltali. Þeir eru að skora 25,6 stig að meðaltali á móti 18,0 stigum frá Stjörnunni. Þórsarar hafa unnið þriðja leikhluta í öllum leikjunum fimm en eini tapleikurinn sker sig þó aðeins úr. Eini sigurleikur Stjörnunnar á móti Þór kom í leik sem þeir töpuðu þriðja leikhlutanum bara með einu stigi. Þór hefur unnið þriðja leikhlutann í hinum fjórum leikjunum með sex stigum eða meira. Í raun má segja að Þórsaliðið hafi hlaupið yfir Stjörnumenn í seinni hálfleik í vetur. Stjarnan hefur unnið fyrri hálfleik leikja liðanna með samanlagt 11 stigum en Þórsarar hafa aftur á móti unnið seinni hálfleikina með 49 stigum. Auðvitað á þriðji leikhlutinn stærstan hlut í viðsnúningi Þórsliðsins en Stjörnumenn hafa hreinlega átt fá svör við tempó Þórsliðsins eftir hlé. Leikur Stjörnunnar og Þórs í kvöld hefst klukkan 20.15 og er hann sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun hjá Domino's Körfuboltakvöldi hefst klukkan 19.45 og strax á eftir leiknum verður hann gerður upp í Domino's Körfuboltakvöldi á sömu stöð. Nettó eftir leikhlutum í fimm leikjum Þórs og Stjörnunnar i vetur: 1. leikhluti: Stjarnan +3 2. leikhluti: Stjarnan +8 3. leikhluti: Þór Þorl. +38 4. leikhluti: Þór Þorl. +11 - Þórsarar eru 38 stig í plús í heildarnettó sem er einmitt forskot liðsins í þriðja leikhluta. Þriðji leikhluti í fimm leikjum Þórs og Stjörnunnar i vetur: Deildarleikur eitt í Garðabæ: Þór Þorl. +8 Deildarleikur tvö í Þorlákshöfn: Þór Þorl. +15 Úrslitakeppni, leikur eitt í Þorlákshöfn: Þór Þorl. +1 Úrslitakeppni, leikur tvö í Garðabæ: Þór Þorl. +6 Úrslitakeppni, leikur þrjú í Þorlákshöfn: Þór Þorl. +8 Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Nettó eftir leikhlutum í fimm leikjum Þórs og Stjörnunnar i vetur: 1. leikhluti: Stjarnan +3 2. leikhluti: Stjarnan +8 3. leikhluti: Þór Þorl. +38 4. leikhluti: Þór Þorl. +11 - Þórsarar eru 38 stig í plús í heildarnettó sem er einmitt forskot liðsins í þriðja leikhluta. Þriðji leikhluti í fimm leikjum Þórs og Stjörnunnar i vetur: Deildarleikur eitt í Garðabæ: Þór Þorl. +8 Deildarleikur tvö í Þorlákshöfn: Þór Þorl. +15 Úrslitakeppni, leikur eitt í Þorlákshöfn: Þór Þorl. +1 Úrslitakeppni, leikur tvö í Garðabæ: Þór Þorl. +6 Úrslitakeppni, leikur þrjú í Þorlákshöfn: Þór Þorl. +8
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild karla Stjarnan Þór Þorlákshöfn Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu