„Þetta verður önnur íþrótt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. júní 2023 13:00 Óskar Hrafn segir von á skemmtun á Kópavogsvelli í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta, segir sína menn klára í slaginn fyrir leik kvöldsins við Víking á Kópavogsvelli. Blikar geta minnkað forskot Víkings á toppi Bestu deildarinnar. „
Þetta er einn af þeim stærri. Það hafa verið hörkurimmur á milli þessara liða undanfarin ár, mikill hiti og ástríða. Það er kannski óþarfi að segja að þetta sé stærsti leikur sumarsins þar sem Valsmenn hafa verið að spila mjög vel líka. En stór er hann og mikilvægur,“ segir Óskar Hrafn um leik kvöldsins. Hann segir Blika þá þurfa að mæta af fullum krafti í verkefnið. „Við nálgumst leikinn bara eins og við nálgumst alla leiki. Við munum sækja og við ætlum að sjá til þess orkustigið okkar sé hærra en þeirra. Þessir leikir sem við höfum spilað undanfarin ár hafa verið hörkuleikir og þeir hafa ráðist á því hvaða lið er yfir í baráttunni, hleypur meira, er með hærra orkustig og hvaða lið nær frumkvæðinu. Við þurfum að sjá til þess að það verði okkar í kvöld,“ segir Óskar Hrafn. Breiðablik gerði markalaust jafntefli við Keflavík í síðasta leik sínum. Sá leikur fór fram við erfiðar aðstæður, í miklu roki og rigningu, á þungum grasvelli í Reykjanesbæ. Allt annað verði upp á teningunum í kvöld. „Þetta verður önnur íþrótt bara. Sá leikur er búinn og við mætum núna á gervigras og bara toppaðstæður. Það er allt til alls til að þetta verðir frábær leikur og frábær skemmtun,“ segir Óskar Hrafn. „Ég er ekki Arnar Grétarsson“ Víkingur hafði unnið fyrstu níu leiki sína í deildinni en tapaði í síðustu umferð, 3-2 fyrir Val. Aðspurður hvort Blikar hafi getað lært eitthvað af Völsurum í þeim leik segir Óskar: „Við erum ekki Valur, við erum ekki með sömu leikmenn og Valur og ég er ekki Arnar Grétarsson. Þannig að við verðum að passa það að halda í okkar einkenni og trúir okkar sjálfsmynd. Vissulega er það þannig að Víkingsliðið er með marga styrkleika en þeir eru líka með veikleika,“ „Þetta er bara sama gamla sagan. Þeir eru mjög öflugt lið en við þurfum að reyna að gera styrkleika þeirra hlutlausa og nýta okkur svo veikleikana þeirra. Við þurfum að ná þeim út úr þægindarammanum og það eru nokkrar leiðir til þess,“ segir Óskar. Þurfi aga, dug og hug Aðspurður hvort hann eigi einhverja ása uppi í erminni fyrir kvöldið segir Óskar Blikaliðið þurfa að vera sannt sínu. „Það eru alltaf einhverjar áherslubreytingar hvort sem um er að ræða Víking, Val, Fram, Fylki eða FH. En í grunninn þurfa menn að vera trúir kjarnanum í því sem þeir eru að gera daginn út og daginn inn. Ég get alveg lofað því að við munum pressa þá hátt á vellinum og reyna að taka þá út úr þeirra takti. Auðvitað er það þannig að þú stendur ekki hátt á Víkingana í 90 mínútur. Þetta mun skiptast á, það munu verða áhlaup. En við þurfum bara að gera vel það sem við erum góðir í, vera agaðir, duglegir og hugrakkir,“ segir Óskar Hrafn. Leikur Breiðabliks og Víkings hefst klukkan 19:15 í kvöld. Bein útsending hefst klukkan 19:00 á Stöð 2 Sport. Stúkan er á dagskrá klukkan 21:25 þar sem öll umferðin verður gerð upp af Guðmundi Benediktssyni og sérfræðingum.
Besta deild karla Breiðablik Víkingur Reykjavík Mest lesið Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Körfubolti Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Körfubolti Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Íslenski boltinn Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti Syrgir fimmtán mánaða son sinn Sport Fleiri fréttir FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Sjá meira
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti