Enn eitt bakslagið í viðleitni til afvopnunar Kristinn Haukur Guðnason skrifar 2. júní 2023 06:16 Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra. Ívar Fannar Rússar hafa formlega sagt sig frá mikilvægasta afvopnunarsamningnum sem tekur á hefðbundnum vopnum. Að mati utanríkisráðuneytisins er ákvörðunin bakslag.
Vladímír Pútin Rússlandsforseti hefur undirritað lög sem afnema aðild Rússlands að Samningnum um hefðbundinn herafla í Evrópu (CFE). Samningurinn var undirritaður árið 1990 á milli aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins, sem var undir forystu Sovétríkjanna. Sagði samningurinn til um hversu mikið af hergögnum hvor blokk mætti hafa í Evrópu. Svo sem 20 þúsund stórskotaliðsbyssur, 20 þúsund skriðdreka og 7 þúsund herflugvélar. Eftir að Varsjárbandalagið féll vildu Rússar breytingar á samningnum, sem gerð var á fundi árið 1999 en aldrei fullgild vegna dvalar herliðs Rússa í rússneskumælandi héröðum Georgíu og Moldóvu. Rússar sjálfir hafa ekki framfylgt samningnum síðan árið 2007. Afvopnun verði að vera gagnkvæm Í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Vísis um málið segir að CFE sé talinn mikilvægasti afvopnunarsamningurinn á sviði hefðbundinna vopna. Vladímír Pútín Rússlandsforseti undirritaði úrsögn Rússland úr CFE samningnum.Getty „Ríkjandi aðstæður vegna innrásar Rússlands í Úkraínu hafa nú þegar steypt framkvæmd afvopnunarsamninga í óvissu, sérstaklega þá er varða gereyðingarvopn, sem er verulegt áhyggjuefni,“ segir í svari Sveins H. Guðmarssonar fjölmiðlafulltrúa. „Þótt Rússar hafi ekki framfylgt CFE-samningnum fyrir sitt leyti frá 2007 er sú ákvörðun stjórnvalda í Moskvu að segja sig formlega frá honum engu að síður enn eitt bakslagið í alþjóðlegri viðleitni til afvopnunar.“ Aðspurður um viðbrögð Íslands segir Sveinn að afstaða Íslands í afvopnunarmálum sé skýr og byggist á þjóðaröryggisstefnu fyrir Íslands, sem segir meðal annars að Ísland beiti sér fyrir afvopnun á alþjóðavettvangi. „Á hinn bóginn verður afvopnun aldrei raunhæf nema hún sé gagnkvæm og það er og verður áfram grundvallaratriði í afstöðu íslenskra stjórnvalda,“ segir hann. Ekki í takt við raunveruleikann Vísir greindi frá því snemma í maí að líklegt væri að Rússar segðu sig frá CFE samningnum, sem 30 ríki hafa undirritað. Edvard Sjévardnase utanríkisráðherra Sovétríkjanna, Dímítrí Jasov sovéskur hershöfðingi, Mikaíl Gorbasjov aðalritari Sovétríkjanna og Francois Mitterand Frakklandsforseti við undirritun CFE samningsins í París árið 1990.Getty „Með því að hafna CFE er Rússland að fjarlægja plagg sem er ekki í takt við raunveruleikann en er ekki að ljúka samtalinu um takmarkanir á hefðbundnum vopnum,“ sagði Konstantín Kosasjov, talsmaður efri deildar rússneska þingsins.
Rússland Utanríkismál NATO Hernaður Tengdar fréttir Rússar hyggjast segja sig frá mikilvægum afvopnunarsamningi Samkvæmt rússneskum ríkismiðlum hyggjast stjórnvöld þar í landi segja sig frá afvopnunarsamningi sem tekur á hefðbundnum vopnum í Evrópu. Íslenskt stjórnvöld bregðast ekki við að svo stöddu. 11. maí 2023 21:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Sjá meira
Rússar hyggjast segja sig frá mikilvægum afvopnunarsamningi Samkvæmt rússneskum ríkismiðlum hyggjast stjórnvöld þar í landi segja sig frá afvopnunarsamningi sem tekur á hefðbundnum vopnum í Evrópu. Íslenskt stjórnvöld bregðast ekki við að svo stöddu. 11. maí 2023 21:00