Íbúum tókst ekki að koma í veg fyrir Arnarnesveg Kristinn Haukur Guðnason skrifar 1. júní 2023 08:06 Teiknuð mynd af Arnarnesvegi. Vegagerðin Úrskurðarnefnd um umhverfis og auðlindamál vísaði kærum í tveimur málum vegna Arnarnesvegar í Kópavogi frá. Eigendur fimmtán húsa auk tveggja samtaka höfðu kært framkvæmdina.
Það voru samtökin Vinir Kópavogs og Hollvinasamtök Elliðaárdalsins og íbúar í nokkrum húsum í Selja, Sala, Kórahverfi og Bergum sem kærðu ákvörðun Kópavogsbæjar um að samþykkja umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir Arnarnesveg, frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut. Það er þriðja áfanga framkvæmdarinnar. Úrskurðirnir voru tveir, númer 79 og 140, en málið á rætur til ársins 2003. Töldu kærendur að lögbundið samráð við íbúa hafi ekki verið virt við deiliskipulagið og að athugasemdum hafi ekki verið svarað á fullnægjandi hátt. Þá hafi umhverfismat framkvæmdarinnar ekki staðist þær kröfur sem gera þurfi fyrir stofnbrautir. Svifryk og hljóðmengun Samkvæmt íbúunum mun vegurinn koma til með að skera Vatnsendahverfið í tvennt og breyta ásýnd og notagildi til hins verra. Framkvæmdin muni hafa með sér veruleg neikvæð áhrif á lífríki, umhverfi og útivist og auka svifryksmengun og hljóðmengun. Einnig auka tafir á götum sem taki við umferð af veginum þar sem þær anna nú þegar ekki aukinni umferð. Þá er bent á að vegurinn muni liggja þétt að fyrirhuguðum Vetrargarði í Breiðholti þar sem verður sleðabraut. Eins og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi bent á þurfi að skoða áhrif mengunar á börn sem leika sér nálægt veginum. Kort af veginum sem tekist var á um.Félag íslenskra bifreiðaeigenda Ekki hafi verið gert ráð fyrir þessu í umhverfismatinu, sem sé orðið tveggja áratuga gamalt. Höfuðborgarsvæðið hafi breyst mikið á þessum tíma, svo sem varðandi umferðarþunga. Gögnin uppfærð Kópavogsbær taldi ákvörðunin byggða á faglegri og vandaðri málsmeðferð, ítarlegum gögnum og hafi verið í fullu samræmi við lög og reglur. Einnig að málsmeðferð Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi hafi verið vönduð og í samræmi við lög og mat á umhverfisáhrifum frá árinu 2003. Framkvæmdaleyfið, sem kært var, hafi byggt á uppfærðum gögnum um umhverfisþætti, svo sem ásýnd, útivist, hljóðvist og menningarminjar. Þá hafi umferðarspá verið uppfærð í tilefni af breytingu gatnamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Hús og gróður á milli Í úrskurði segir að hinn umdeildi vegur muni ekki sjást frá húsum margra kærendanna og að eitt húsið sé í kílómetra fjarlægð frá veginum. Þá séu bæði hús og gróður á milli nefndra eigna kærenda og framkvæmdasvæðisins. „Vegna greindra staðhátta verður að telja að hið kærða framkvæmdaleyfi varði ekki einstaklingsbundna hagsmuni framangreindra kærenda umfram aðra. Eiga þeir því ekki lögvarinna hagsmuna að gæta með tilliti til grenndaráhrifa. Verður kröfum framangreindra kærenda því vísað frá úrskurðarnefndinni,“ segir í úrskurði. Samtökunum var hins vegar veitt aðild en kæru þeirra var hafnað. Bent var á að þegar umhverfismatið var gert hafi legið fyrir umferðarspá 20 ár fram í tímann. Skipulagsstofnun hafi metið uppfærð gögn svo að ekki þyrfti nýtt umhverfismat. „Með vísan til alls þess sem að framan er rekið verður ekki talið að hin kærða ákvörðun um veitingu framkvæmdaleyfis fyrir 3. áfanga Arnarnesvegar sé haldin þeim form- eða efnisannmörkum að ógildingu varði og verður kröfu kærenda þar um því hafnað,“ segir í úrskurðinum.
Kópavogur Reykjavík Vegagerð Skipulag Tengdar fréttir Óskar í Óskataki sér fram á að vinna fyrir 5,4 milljarða króna Lægsta boð í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð í efri byggðum Kópavogs reyndist 718 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Boðið kom frá verktökunum Óskataki og Háfelli og er upp á 5,4 milljarða króna. 9. maí 2023 20:10 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Fleiri fréttir Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Bein útsending: Kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Sjá meira
Óskar í Óskataki sér fram á að vinna fyrir 5,4 milljarða króna Lægsta boð í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð í efri byggðum Kópavogs reyndist 718 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Boðið kom frá verktökunum Óskataki og Háfelli og er upp á 5,4 milljarða króna. 9. maí 2023 20:10