Flytja hitaveitulagnir fyrir nýja hverfið

Framkvæmdir standa nú yfir við lagningu nýrra hitaveitulagna vestast á Seltjarnarnesi. Á myndinni, sem tekin er við Sefgarða fyrr í vikunni, má sjá hvar nýja lögnin verður, á móts við hjúkrunarheimilið Seltjörn.

Samkvæmt upplýsingum frá Seltjarnarnesbæ er um að ræða hitaveitulagnir sem færðar eru út fyrir nýja Bygggarðahverfið sem er í undirbúningi en einnig nýja lögn frá nýrri borholu sem boruð var síðasta haust. Hitaveitulagnaverkefnið hófst síðasta haust og áætluð verklok eru í næsta mánuði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert