Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, var vel sjálfselskur í leik gegn Brighton á miðvikudaginn.
Þetta segir Graeme Souness, fyrrum leikmaður Liverpool, en Salah skoraði tvö mörk í 3-1 sigri liðsins.
Salah er að elta Gullskóinn en sá leikmaður sem skorar flest mörk í úrvalsdeildinni fær þau verðlaun í lok tímabils.
,,Hann var tilbúinn alveg frá fyrstu mínútu. Ég held að Gullskórinn skipti hann miklu máli,„ sagði Souness við Sky.
,,Þú gast séð viðbrögðin hans þegar liðsfélagarnir voru ekki að finna hann á síðasta þriðjungnum.“
,,Hann skaut í hvert skipti sem hann gat og liðsfélagarnir hafa ekki verið ánægðir í tvö eða þrjú skipti.“
,,Hann er alltaf sjálfselskur. Í kvöld var hann auka sjálfselskur. Hann vill þennan Gullskó.“