Innlent

Tveimur mönnum bjargað úr sjónum úti fyrir Álftanesi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Björgunarsveitarmenn um borð í bát. Mynd er úr safni.
Björgunarsveitarmenn um borð í bát. Mynd er úr safni. Vísir/vilhelm

Fjölmennt lið viðbragðsaðila var kallað út á tólfta tímanum í dag vegna tveggja manna í sjónum við Hrakhólma rétt utan við Álftanes. Þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn var annar maðurinn uppi á skeri við Hrakhólma en hinn hafði rekið burt. Hann fannst fljótt og eru báðir mennirnir nú komnir heilu og höldnu í hendur sjúkraflutningamanna.

Fyrsta tilkynning um málið benti til þess að einn maður væri í sjónum en þeir reyndust tveir, líkt og áður segir. Ekki er ljóst hvort mennirnir voru á báti, kajak eða á sundi. 

Líkt og áður segir var fjölmennt lið björgunarsveita, slökkviliðs og lögreglu kallað út vegna málsins. Meirihluti liðsins var þó afturkallað þegar í ljós kom að staðan var ekki jafnalvarleg og talin var í fyrstu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×