3.000 Íslendingar fá ávísað mörgum ávanabindandi lyfjum á sama tíma Sunna Valgerðardóttir skrifar 25. janúar 2022 23:01 Vísir/Arnar Aldrei hafa fleiri Íslendingar leyst út jafn margar tegundir af ávanabindandi lyfjum heldur en í fyrra. Íslenskur almenningur notar sömuleiðis mun meira af tauga- og geðlyfjum en fólk annars staðar á Norðurlöndum.
Lyfjatengdum andlátum heldur áfram að fjölga, þó að læknar séu ekki eins viljugir til að skrifa út ávanabindandi lyf og áður. Kompás fjallaði í gær um hinn nýja ópíóíðafaraldur sem skellur nú á þjóðinni, með löglegum og ólöglegum, hreinum og óhreinum, verkjalyfjum sem flæða hér um allt. Við vinnslu þáttarins var rætt við fjölda sérfræðinga um þróun faraldursins hér og sögðu sumir það nokkra einföldun að tala um faraldur vegna ópíóíða eingöngu. Vandamálið væri enn stærra og snúi að ofneyslu blandaðra lyfja. Og fjöllyfjanotkun með ávanabindandi lyfjum er alltaf að aukast. Metfjöldi fólks leysir út metfjölda lyfja Samkvæmt tölum frá Landlæknisembættinu hafa aldrei fleiri einstaklingar leyst út jafn mörg ávanabindandi lyf yfir árið eins og í fyrra. Þetta voru rúmlega þrjú þúsund manns sem leystu út margar tegundir af ávanabindandi lyfjum, þar af var um þriðjungur eldri borgarar. Tíu efni í sömu manneskjunni Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri á hálfu ári en þau voru í fyrra frá janúar til júní, 24. Samkvæmt svörum Rannsóknarmiðstöðvar Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræðum við fyrirspurn Kompás, er í flestum tilvikum um að ræða blöndu af mörgum mismunandi efnum sem leiðir fólk til dauða. Stundum eru greind allt upp í 10 mismunandi efni í þeim sem deyja. Norðurlandameistarar í hættulegum lyfjum Varðandi notkun á ávanabindandi lyfjum á Norðurlöndunum koma Svíar í öðru sæti á eftir Íslendingum, en við notum samt 30 prósent meira heldur en þeir. Íslendingar tróna langefst á toppnum þegar kemur að morfínskyldum verkjalyfjum, eða ópíóíðum, þunglyndislyfjum, róandi og örvandi lyfjum. Og hafa ber í huga að þetta eru tölur úr gagnagrunnum heilbrigðisyfirvalda sem byggja á ávísunum frá læknum, en nær ekki til ólöglega markaðarins.
Kompás Heilbrigðismál Fíkn Lyf Tengdar fréttir Íslendingar nota mest af hættulegum lyfjum Íslendingar nota langmest af tauga- og geðlyfjum af öllum Norðurlandaþjóðunum. Fíknigeðlæknir segir það séríslenskt, og mjög banvænt, að blanda saman mörgum ávanabindandi lyfjum en halda sig ekki við eitt kjörefni. Þetta gerir afeitrun og meðferð sömuleiðis flóknari og fólk fellur frekar vegna þess að freistingarnar eru út um allt. 25. janúar 2022 12:00 Nýr ópíóíðafaraldur: „Í stöðugri lífshættu nokkrum sinnum á dag” Tuttugu og eitt þúsund Íslendingar eru langtímanotendur ávanabindandi lyfja. Lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af Norðurlöndunum og hafa þau aldrei verið fleiri en á fyrri helming síðasta árs. 25. janúar 2022 07:00 Margfalt fleiri nota Oxycontin nú en fyrir tíu árum Um 3.500 manns eru nú skráðir neytendur ópíóíðans Oxycontin. Þeir voru um 500 fyrir áratug. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs. 24. janúar 2022 18:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira
Íslendingar nota mest af hættulegum lyfjum Íslendingar nota langmest af tauga- og geðlyfjum af öllum Norðurlandaþjóðunum. Fíknigeðlæknir segir það séríslenskt, og mjög banvænt, að blanda saman mörgum ávanabindandi lyfjum en halda sig ekki við eitt kjörefni. Þetta gerir afeitrun og meðferð sömuleiðis flóknari og fólk fellur frekar vegna þess að freistingarnar eru út um allt. 25. janúar 2022 12:00
Nýr ópíóíðafaraldur: „Í stöðugri lífshættu nokkrum sinnum á dag” Tuttugu og eitt þúsund Íslendingar eru langtímanotendur ávanabindandi lyfja. Lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af Norðurlöndunum og hafa þau aldrei verið fleiri en á fyrri helming síðasta árs. 25. janúar 2022 07:00
Margfalt fleiri nota Oxycontin nú en fyrir tíu árum Um 3.500 manns eru nú skráðir neytendur ópíóíðans Oxycontin. Þeir voru um 500 fyrir áratug. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs. 24. janúar 2022 18:45