Fær ekki tugmilljónir eftir bakvaktadeilu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. mars 2023 14:39 Ólafsvík er hluti Snæfellsbæjar. Getty Fyrrverandi slökkviliðsstjóri slökkviliðs Snæfellsbæjar hafði ekki erindi sem erfiði er hann reyndi að sækja hátt í 40 milljónir króna sem hann taldi sig eiga inni hjá sveitarfélaginu vegna ógreiddra bakvakta.
Mál slökkviliðsstjórans var tekið fyrir í Héraðsdómi Vesturlands. Ákveðið var að vísa ágreiningi um bakvaktargreiðslurnar til dómstóla þegar slökkviliðsstjórinn og forsvarsmenn sveitarfélagsins skrifuðu undir starfslokasamning í desember síðastliðinn. Þá lét slökkviliðsstjórinn af störfum eftir um fjörutíu ára starf hjá Slökkviliði Snæfellsbæjar, áður Ólafsvíkur. Þar af hafði hann verið í tuttugu prósent starfi sem slökkviliðsstjóri frá árinu 2005. Nokkur ágreiningur um bakvaktir Lesa má úr dómi héraðsdóms að slökkviliðsstjórinn og sveitarfélagið hafi um nokkurra ára skeið átt í ágreiningi um bakvaktir, fyrirkomulag þeirra og greiðslur. Sveitarfélagið virðist þó í gegnum þessar deilur ekki hafa verið á þeim buxunum að taka upp bakvaktarfyrirkomulag hjá slökkviliðinu. Til að mynda var ákveðið í nýlegri brunavarnaráætlun, sem slökkviliðsstjórinn tók þátt í að vinna, að ekki yrði um bakvaktarfyrirkomulag hjá slökkviliðinu, þótt hægt yrði að endurskoða það. Maðurinn hafði starfað sem slökkviliðsmaður í um fjóra áratugi.Vísir/Vilhelm Í apríl síðastliðnum var þó kynnt drög að viðauka við ráðningarsamning slökkviliðsmanna um að greitt yrði fyrir samtals fimmtíu vinnustundir í bakvakt, sem skipt yrði á milli starfsmanna slökkviliðsins. Stuttu síðar barst sveitarfélaginu þó stefna frá slökkviliðsstjóranum þar sem hann krafðist þess að fá greitt fyrir bakvaktir sem hann hafi ynnt af hendi frá árinu 2018. Reglugerð lykilatriði að mati slökkviliðsstjórans Var krafan byggð á reglugerð um starfsemi slökkviliða þar sem meðal annars er komið inn á hlutverk slökkviliðsstjóra. Vísaði slökkviliðsstjórinn í að samkvæmt umræddri reglugerð ætti „Slökkviliðsstjóri, varaslökkviliðsstjóri eða stjórnandi sem uppfyllir hæfniskröfur viðkomandi slökkviliðs skal ávallt vera á vakt eða á bakvakt og til staðar á starfssvæði slökkviliðsins,“ líkt og það er orðað. Taldi slökkviliðsstjórinn að þetta hafi lagt á hann þá skyldu að standa bakvakt allan sólarhringinn, allan ársins hring frá gildistöku reglugerðarinnar. Fyrir þetta hafi hann ekki fengið greitt. Höfnin í ÓlafsvíkGerig/ullstein bild via Getty Images Krafðist hann þess því að fá alls tæpar 38 milljónir krónar frá bænum fyrir ógreiddar bakvaktir. Sveitarfélagið taldi hins vegar að maðurinn ætti ekki rétt á slíkum greiðslum, þar sem ekkert bakvaktarfyrirkomulag hafi verið í gildi eða samkomulag þar um. Í niðurstöðu héraðsdóms er vikið að því að ekki verði annað séð en að slökkviliðsstjórinn hafi ekki ljáð máls á því að semja um greiðslur fyrir bakvaktir, fyrr en á vormánuðum síðasta árs, þegar fyrir lágu drög að samningi um greiðslu fyrir bakvaktir. En ekki að mati héraðsdóms Þá fær héraðsdómur ekki séð að slökkviliðsstjórinn hafi gert kröfu á sveitarfélagið um að bregðast við þegar umrædd reglugerð tók gildi árið 2018, þar sem fjallað er um bakvaktarskyldu slökkviliðsstjóra. Í raun byggi allt mál hans á því að reglugerðin hafi tekið gildi og þar með fellt skyldur á sveitarfélagið til að greiða honum fyrir bakvaktir. Segir í dómi héraðsdóms að þrátt fyrir að ljóst sé að umrædd reglugerð eigi sér lagastoð sé ljóst að skýra lagaheimild þurfi til að leggja fjárhagslega skuldbindingar á sveitarfélög. Almennt og opið ákvæði um að reglugerð megi setja samkvæmt lögum dugi ekki. Þá fær dómurinn ekki sé að umrædd orðalag reglugerðarinnar felli þá skyldu, án nokkurra frekari ráðstafana eða samtals, á slökkviliðsstjóran einan til að vera á bakvakt 24 tíma sólarhrings, alla daga ársins, og þar með greiðsluskyldi á sveitarfélagið. Var sveitarfélagið því sýknað af öllum kröfum slökkviliðsstjórans fyrrverandi.
Slökkvilið Dómsmál Vinnumarkaður Kjaramál Snæfellsbær Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Fleiri fréttir Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Sjá meira